Barnabrúðkaupum fækkað stórkostlega á örfáum árum Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. mars 2018 06:33 Aukin menntun stúlkna hefur skipt sköpum. Vísir/Getty
Samkvæmt útreikningum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Unicef, hefur verið komið í veg fyrir um 25 milljón barnabrúðkaup síðastliðinn áratug. Ein af hverjum fimm stúlkum ganga nú í hjónaband fyrir 18 ára aldur en hlutfall þeirra fyrir tíu árum síðan var um 25 prósent. Unicef segir að fækkunin hafi verið mest í ríkjum Suðaustur-Asíu, til að mynda á Indlandi þar sem aukin menntun stúlkna og vitundarvakning um hættur barnabrúðkaupa hefur skipt sköpum. Stofnunin segir að ástandið sé í dag hvað verst í Afríku en þrátt fyrir það hefur náðst góður árangur víða í álfunni. Ekki síst í Eþíópíu þar sem barnabrúðkaupum hefur fækkað um þriðjung. Engu að síður fara um þriðjungur allra barnabrúðkaupa í heiminum fram í ríkjum sunnan Sahara. Haft er eftir Anju Malhotra, aðalráðgjafa Unicef í kynjamálum, á vef breska ríkisútvarpsins að í ljósi þeirra áhrifa sem barnabrúðkaup hafa á ungar stúlkur þá sé öll fækkun af hinu góða. Hins vegar sé ljóst að alþjóðasamfélagið eigi enn mikið verk að vinna. „Þegar stúlkur eru neyddar í hjónabörn svona ungar þá hefur það óafturkræf áhrif á þær til lífstíðar. Líkurnar á því að þær klári nám minnka á meðan líkurnar á því að þær séu misnotaðar og þjáist á meðgöngunni aukast,“ segir Malhotra. Þjóðarleiðtogar hafa einsett sér að útrýma barnabrúðkaupum fyrir árið 2030, sem hluti af Sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Sjá meira