Í haldi vegna höfuðs í skjalatösku Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. febrúar 2018 08:49 Lögreglan við rannsókn á íbúðinni þar sem höfuðið fannst. Vísir/Getty
Japanska lögreglan yfirheyrir nú bandarískan ferðamann vegna höfuðs ungrar konu sem fannst í íbúð sem maðurinn hafði leigt í borginni Osaka. Lögreglan telur að höfuðið, sem geymt var í skjalatösku, tilheyri konu sem síðast sást á lífi í fylgd mannsins. Konan var 27 ára gömul og hafði sagt vinum sínum að hún hygðist ætla að hitta Bandaríkjamann sem hún hafði kynnst í gegnum smáforrit. Maðurinn neitar hins vegar alfarið að tengjast höfðinu í skjalatöskunni með nokkrum hætti. Japanskir miðlar segja manninn heita Yevgeniy Vasilievich Bayraktar og vera 26 ára gamlan. Hann á að hafa komið til Japans frá New York með það fyrir augum að kynna sér land og þjóð. Að sögn móður hans hafði hann ætíð dreymt um að giftast japanskri konu. Þau Bayraktar og japanska konan eru sögð hafa hist nokkrum sinnum undanfarnar vikur en ekki er vitað nákvæmlega hvernig sambandi þeirra var háttað. Þó er ljóst að maðurinn hafði áður brotið gegn konunni, til að mynda þegar hann var handtekinn í liðinni viku fyrir að halda henni nauðugri í íbúð sinni. Lögreglan segir að síðan tilkynnt var um hvarf konunnar hafi sést til Bayraktar ganga út úr íbúðinni með stóran poka. Skömmu síðar fundu leitarmenn líkamshluta í fjalllendi nálægt Osaka. Ekki er hins vegar vitað á þessari stundu hvort þeir hafi tilheyrt hinni umræddu japönsku konu.
Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Sjá meira