Skoðun

Útvarp Reykjavík

Pálmi Guðmundsson skrifar
Íslenskir fjölmiðlar, nýir og gamlir, eru allir að ganga í gegnum miklar breytingar í stafrænum heimi. Væntingar neytenda eru meiri en áður og neysluvenjur breyttar. Óbreytt er þó enn að ríkisstofnunin RÚV keppir af miklum þunga á auglýsingamarkaði og fyrirferð hennar veldur því að samkeppnisumhverfið er minni aðilum erfitt.

Almennt eru einungis tveir tekjustofnar tilteknir þegar fjallað er um fjármögnun RÚV: útvarpsgjald og auglýsingatekjur. RÚV er samt sem áður fjármagnað með fjölbreyttari hætti en það. Nefskattur skilar RÚV um fjórum milljörðum árlega og auglýsingar rúmlega tveimur milljörðum. Að auki fá úthýst sjónvarpsverkefni fyrir RÚV árlega um hundrað milljónir króna í styrki frá Kvikmyndamiðstöð Íslands, endurgreiðslu frá ráðuneyti nýsköpunar og atvinnumála og reglulega styrki frá Nordisk TV & Film fund. RÚV fær ennfremur liðveislu frá EBU, innkaupasambandi norrænu sjónvarpsstöðvanna. Þá hefur Ríkisútvarpið selt myndefni, lóðir og leigt húsnæði, tæki og tól.

Fyrirferð RÚV á auglýsingamarkaði er mikil og verðmyndandi en heildarvelta stofnunarinnar er álíka og samanlögð ársvelta auglýsinga þriggja stærstu fjölmiðlafyrirtækja landsins. Eitt er að hafa RÚV án auglýsinga líkt og aðrar þjóðir í kringum okkur ákváðu að gera og annað að hófstilla umsvifin.

Eignarhald á fjölmiðlum tók miklum stakkaskiptum þegar tvö fjarskiptafélög hófu innreið sína á fjölmiðlamarkaðinn. Bæði félög eru í dreifðu eignarhaldi, þau eru að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða landsmanna og skráð í Kauphöll Íslands.

Viðhorfsmælingar hafa sýnt að þjóðin vill öflugt RÚV og umræða sem þessi snýr ekki að því að veikja þessa mikilvægu og vinsælu stofnun. Nú eru helstu fjölmiðlar landsins að mestu komnir í eigu almennings og ekki lengur sérhagsmunamál fárra einstaklinga. Því höfum við aldrei fyrr haft betra tækifæri til að koma RÚV inn í nútímalegra rekstrarumhverfi en einmitt núna.

Með því að endurhugsa RÚV á auglýsingamarkaði má tryggja að þessi mikilvægi miðill geti einbeitt sér að því lögbundna hlutverki sínu, að reka fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Þar sem lögð er sérstök rækt við íslenska tungu, menningararfleifð og tengsl við almenning án þess að þarfir auglýsenda hafi þar nokkur áhrif. Brotthvarf eða takmarkanir á RÚV á auglýsingamarkaði myndi skapa stóraukið svigrúm fyrir fleiri fjölmiðla til að láta ljós sitt skína og þar með auka fjölbreytni í efnisvali og þjónustu fyrir fólkið í landinu.

Höfundur er fjölmiðlafræðingur og dagskrárstjóri Sjónvarps Símans.




Skoðun

Sjá meira


×