Flóttamenn frusu í hel nærri Líbanon Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 20. janúar 2018 20:00 Leiðin er háskaleg því hún liggur um fjalllendi auk þess sem stórhríð skall á um helgina. Myndin er af Sýrlenskum flóttamanni í flóttamannabúðum í Líbanon en tengist efni fréttarinnar ekki beint. Vísir/afp
Fimmtán flóttamenn frusu í hel eftir þeir reyndu að komast frá Sýrlandi og yfir landamærin til Líbanon. Leiðin er háskaleg því hún liggur um fjalllendi auk þess sem stórhríð skall á um helgina. Lík þrettán þeirra fundust í gær og tvö fundust í dag. Börn voru á meðal hinna látnu. Líkin fundust eftir að almannavörnum í Líbanon hafði verið gert viðvart að hópur flóttamanna væri í vanda staddur nærri Masnaa. Smyglarar leiddu hópinn í ógöngur og skildu hann eftir í sjálfheldu að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins BBC. Tveir hafa verið handteknir í tengslum við málið. Unnt var að koma nokkrum til bjargar sem fundust á lífi á þessum slóðum, meðal annars var ungum dreng sem ráfaði einsamall í námunda við landamæri Líbanon komið í öruggt skjól. Fólkið sem lést með þessum hræðilega hætti fetaði sömu slóð og hundruð þúsunda Sýrlendinga hafa áður farið í sjálfsbjargarviðleitni til að flýja stríðsástandið heima fyrir. Líbanon hefur tekið á móti milljón Sýrlendingum frá því stríðið hófst árið 2011.
Líbanon Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira