„Djákni dauðans“ sakaður um að myrða tíu manns Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. janúar 2018 23:22 Ivo Poppe er sakaður um að hafa myrt fórnarlömb sín með því að sprauta lofti í æðar þeirra. vísir/getty
Réttarhöld yfir kaþólskum djákna sem ákærður er fyrir að myrða að minnsta kosti tíu manns, þar á meðal móður sína, hófust í Belgíu í dag. Maðurinn, sem heitir Ivo Poppe, er 61 árs gamall og fyrrverandi hjúkrunarfræðingur. Hann er sakaður um að hafa myrt fórnarlömb sín með því að sprauta lofti í æðar þeirra en brotin áttu sér stað á læknastofu í Menen þar sem hann starfaði sem hjúkrunarfræðingur og síðar sem djákni. Fjölmiðlar í Belgíu hafa kallað Poppe „djákna dauðans.“ Verði hann fundinn sekur fer hann í hóp verstu raðmorðingja í sögu Belgíu, að því er fram kemur á vef BBC. Poppe var handtekinn árið 2014 eftir að hann sagði geðlækninum sínum frá því að hann hefði aðstoðað fólk við að deyja líknardauða. Upphaflega játaði hann sök að hluta og kvaðst hafa verið að aðstoða þá sem voru með ólæknandi sjúkdóma við að deyja. Hann breytti síðar framburði sínum og neitar nú sök. Á meðal þeirra sem hann er ákærður fyrir að myrða eru nokkrir af ættingjum hans; tveir frændur, tengdafaðir hans og móðir sem hann á að hafa myrt árið 2011. Móðir Poppe þjáðist af þunglyndi en læknar hennar hafa neitað því að hún hafi viljað deyja líknardauða. Saksóknarar telja að Poppe hafi mögulega myrt mun fleiri en þá tíu sem hann er ákærður fyrir en lögmenn hans segja þá af og frá. Réttarhöldin munu standa yfir í að minnsta kosti viku og munu tugir vitna koma fyrir dóminn, þar á meðal ættingjar þeirra sem Poppe á að hafa myrt.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira