Þrjú þúsund ára gömul stytta af egypskum konungi flutt á safn Kjartan Kjartansson skrifar 25. janúar 2018 17:43 Sérstakur búnaður var notaður til að flytja styttuna á milli bygginga til að koma í veg fyrir að hún yrði fyrir hnjaski á leiðinni. Vísir/AFP
Stytta af Ramses öðrum konungi Egyptalands til forna var flutt á nýtt heimili á Stórsafni Egyptalands í Kaíró dag. Hún er talin um 3.200 ára gömul og vegur 83 tonn. Verkfræðingar egypska hersins og verktakar sáu um að flytja styttuna fjögur hundruð metra leið úr geymslu á safnið. Egypsk yfirvöld vonast til þess að styttan hjálpi til við að blása lífi í ferðamannaiðnaðinn í landinu sem hefur liðið fyrir pólitískan óstöðugleika og ofbeldi undanfarin ár, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Ramses annar verður fyrsti gripurinn sem blasir við gestum nýja safnsins. Það opnar ekki formlega fyrr en árið 2022 en hlutar þess verða opnaðir síðar á þessu ári. Styttan fannst í fornleifauppgreftri í Mit Rahina árið 1820. Árið 1955 var styttan flutt á torg sem kennt er við konunginn í Kaíró. Þar lék vaxandi mengun og umferð styttuna grátt sem leiddi til þess að henni var komið fyrir í geymslu árið 2006, að því er segir í frétt Reuters. Ramses ríkti í Egyptalandi til forna frá 1279 til 1213 fyrir krist. Hann var grafinn í Dal konunganna. Lík hans er til sýnis á safni í Kaíró.
Egyptaland Fornminjar Styttur og útilistaverk Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Fleiri fréttir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Sjá meira