„Óeirðir“ í frönskum matvöruverslunum vegna Nutella Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. janúar 2018 23:34 Nutella er súkkulaðismjör sem er vinsælt að setja á til dæmis brauð og vöfflur. vísir/getty
70 prósent afsláttur sem franska verslunarkeðjan Intermarché hefur boðið af súkkulaðismjörinu Nutella undanfarið hefur leitt til handalögmála þar sem viðskiptavinir hafa bókstaflega slegist um krukkur af þessu gómsæta áleggi. Verðið á krukkunni fór úr 4,50 evrum í 1,40 evrur og var lögreglan kölluð út í einni verslun þegar fólk byrjaði að slást og ýta við hvort öðru til að ná sér í sitt Nutella. „Þau eru eins og óargadýr. Það var rifið í hárið á einni konu [...] og önnur var með blóðuga hönd,“ sagði viðskiptavinur þegar hann lýsti ástandinu í einni af verslunum Intermarché að því er fram kemur í frétt BBC. „Við vorum að reyna að komast á milli viðskiptavinanna en þeir ýttu okkur bara,“ sagði starfsmaður í annarri verslun Intermarché þar sem allt Nutella kláraðist á innan við korteri. Einn viðskiptavinur fékk glóðarauga í barningnum en ekki fylgir sögunni hvort hann hafi náð að næla sér í Nutella. Svipaða sögu er að segja úr verslunum Intermarché víða um Frakkland og hafa margir lýst þessu ástandi hreinlega sem „óeirðum.“
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira