Greiðslumáti framtíðar kemur fyrst til landsins Stefán Þór Hjartarson skrifar 6. desember 2017 10:45 Þessi auglýsing birtist í öllum helstu dagblöðum landins til að hvetja fólk til að taka upp debetkortið.
Á þessum degi fyrir 24 árum voru debetkort tekin upp í fyrsta sinn hér á landi. Mörgum kann að bregða við þessar fregnir, enda debetkortin ansi stór hluti lífs okkar í nútímanum en þó er ekki lengra síðan en þetta að kortin urðu að þessum ómissandi hluta lífs okkar, nánast framlenging líkamans – eða að minnsta kosti heilans. Auglýsing frá bönkunum birtist meðal annars í DV og Morgunblaðinu þar sem kortin voru kynnt til sögunnar og kostir þeirra taldir upp. Meðal annars voru þau sögð nútímalegur og þægilegur greiðslumiðill og vera fjögur kort í einu; staðgreiðslukort, hraðbankakort, ábyrgðarkort og bankakort. Þeir sem tryggðu sér kort snemma þurftu ekki að greiða færslugjöld af þeim fram að 1. apríl 1994 og ekkert árgjald fyrir árið 1994. Þó voru ekki allir sáttir við þessa nýjung – Kaupmannasamtök Íslands mótmæltu upptöku „greiðslumáta framtíðarinnar, til þess að leysa vanda fortíðarinnar“ og var þá snúið á orð bankanna sem sögðu kortin greiðslumáta framtíðarinnar. Í blöðum birtist meðal annars auglýsing með yfirskriftinni „Látum ekki ráðast á okkur með korti og klóm“. Undir mótmælin skrifuðu ÁTVR, Apótekarafélag Íslands, allir stórmarkaðir, Bílgreinasambandið, Félag íslenskra stórkaupmanna, Fríhöfnin í Keflavík, Flugleiðir, Landssamband iðnaðarmanna, Olíufélögin, Samband samvinnuverslana, Samband veitinga- og gistihúsa og fleiri. Í auglýsingunni var ýmislegt talið til sem þessum hópi fannst ekki gott, þar á meðal að bankarnir myndu hækka verðið á notkun ávísanahefta, hækka vöruverð með því að krefjast þjónustugjalds af verslunareigendum og að notendur debetkortanna yrðu skikkaðir til að greiða færslugjöld.Það voru ekki allir sáttir við nýju kortin, sérstaklega ekki gjöldin sem þeim fylgdu.„En við mótmælum einhliða ákvörðunum íslenska bankakerfisins um stórauknar álögur á einstaklinga og fyrirtæki í tengslum við debetkortið og upptöku þess. Við skorum á íslenska neytendur og viðskiptavini bankanna að standa með okkur í baráttunni gegn einokun bankanna í þessu máli. Við skorum á kaupmenn og aðra þjónustuaðila á Íslandi að gera ekki samning við kortafyrirtæki bankanna um þjónustugjaldtöku vegna debetkorta fyrr en samráðshópur KÍ gegn gjaldtöku vegna debetkorta hefur lokið störfum.“ Í dag hafa kort komið í staðinn fyrir notkun reiðufjár hér á landi. Þó, eins og kom fram í frétt Fréttablaðsins í desember í fyrra, notum við Íslendingar kreditkort töluvert minna en gengur og gerist í þeim löndum sem við berum okkur gjarnan saman við: „Áætluð notkun debetkorta á Íslandi var aðeins um 34 prósent á árinu 2014 en til samanburðar var notkun debetkorta í Noregi helmingi meiri – eða um 68 prósent. Í Danmörku var hlutfallið um 64 prósent og í Svíþjóð um 55 prósent.“
Mest lesið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið Greiðslumáti framtíðar kemur fyrst til landsins Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Sjá meira