Alls ganga 55 fyrirsætur tískupallana og því er í nægu að snúast baksviðs þannig að allt gangi smurt fyrir sig. Við skyggndumst inní heim fyrirsætanna og hvað felst nákvæmlega í viðburði af þessari stærðargráðu.

Um leið og fyrirsæturnar vita í hvaða skóm þær verða í á sýningunni sjálfri, byrja þær að æfa sig að ganga í þeim.
Það er blátt bann við að mæta í íþróttaskóm á æfingar eða í búningamátun og þurfa fyrirsæturnar að þramma um allt í hælunum þar til þær eru öruggar í þeim.
Þessi regla er sett svo fyrirsætunum líði vel á tískupallinum og verði ekki fyrir óhappi, til dæmis að misstíga sig eða detta.

Búningar í tískusýningu Victoria’s Secret eru oft ansi efnislitlir. Því er gripið á það ráð að klæða sumar fyrirsæturnar í húðlitaða G-strengi undir nærfötunum sem þær eru að sýna.
Þannig er komið í veg fyrir að líkamspartar sem eiga ekki að sjást séu huldir.

Baksviðs á tískusýningunni má finna endalausar rúllur af límbandi með lími báðu megin.
Límbandið er notað til að halda öllu á sínum stað, hvort sem það eru brjóstahaldarar eða uppháir sokkar.
Eins og með húðlituðu G-strengina, þá er þetta gert til að tryggja að ekkert sjáist í útsendingunni sem getur hneykslað áhorfendur og auðvitað til að láta fyrirsætunum líða vel.

Það kemur fyrir að búningar á tískusýningunni rifna þegar fyrirsæturnar klæða sig í þá, og eru mörg dæmi um slíkt.
Ef slíkt neyðarástand skapast, er nóg af saumakonum á svæðinu með nál og tvinna að vopni, sem einfaldlega sauma búningana utan á fyrirsæturnar.
Þá getur verið þrautinni þyngra að komast úr búningunum aftur, en sem betur fer er nóg af aðstoðarfólki innan handar.

Fyrirsæturnar eru fallegar frá náttúrunnar hendi, en þurfa samt sem áður að stija í förðurnarstólnum í marga klukkutíma fyrir sýninguna, þá bæði til að láta farða sig, dytta að neglum og greiða hár.
Alls vinna 32 förðunarfræðingar, 27 hárgreiðslumeistarar og 11 snyrtifræðingar við sýninguna og tryggja að útlit fyrirsætanna sé ávallt óaðfinnanlegt.