Lágmarksboð uppboðshússins var 100 milljónir bandaríkjadala og var boðið í verkið í rúmlega 20 mínútur. Hæstbjóðandi var ekki viðstaddur uppboðið og fylgdist hann með gangi mála í gegnum síma. Mikill fögnuður braust út þegar verkið var að lokum slegið.
Leonardo da Vinci lést árið 1519 og eru færri en 20 málverk eftir hann til í heiminum. Aðeins eitt er talið vera í einkaeigu og er það Salvator Mundi, sem útleggst sem Frelsari heimsins, sem selt var í gær. Talið er að verkið hafi verið málað eftir 1505 og er því rúmlega 500 ára gamalt. Á málverkinu sést Jesús haldandi á glerkúlu og bendandi til himins.
Skiptar skoðanir eru innan listaheimsins um hvort að verkið sé raunverulega eftir da Vinci. Haft er eftir einum gangrýnanda á vef breska ríkisútvarpsins að svo virðist sem margoft hafi verið byrjað á verkinu og svo oft málað yfir það að það líti út fyrir að vera „bæði gamalt og nýtt á sama tíma.“ „Safnari sem lætur plata sig í að kaupa verkið og setur það í íbúðina sína eða ofan á arinhilluna á það hreinlega skilið.“

Árið 1958 var verkið selt í London fyrir einungis 60 bandaríkjadali. Þá var almennt talið að málverkið væri eftir einn af lærlingum Leonardos eða aðdáanda hans, en ekki eftir hann sjálfan.
Árið 2005 vakti verkið mikla athygli þegar fólk uppgötvaði að mögulega væri um að ræða verk eftir da Vinci og hófust þá miklar endurbætur á verkinu. Fjölskylda rússneska milljarðamæringsins Dmitry E Rybolovlev keypti það í maí árið 2013 fyrir um 127,5 milljónir bandaríkjadala
Það var slegið á rúmar 450 milljónir dala sem fyrr segir og er því dýrasta málverk allra tíma. Fram að því var dýrasta verkið eftir Willem de Kooning, Víxlun eða Interchange, sem seldist á 300 milljónir dala árið 2015.