Suu Kyi heimsækir Rakhine-hérað Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 3. nóvember 2017 07:00 Suu Kyi hefur verið gagnrýnd taka ekki á ofsóknunum. Nordicphotos/AFP
Aung San Suu Kyi, ríkisráðgjafi og leiðtogi Mjanmar, heimsótti Rakhine-hérað í gær í fyrsta sinn síðan hún tók við embætti. Rúmlega hálf milljón Róhingja hefur flúið héraðið frá því í ágúst vegna ofsókna og hefur mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna sakað ríkisstjórn Mjanmar um að standa í þjóðernishreinsunum. Ekki er vitað hvort Suu Kyi muni heimsækja einhvern þeirra 200 bæja Róhingja sem herinn er sagður hafa brennt til grunna með aðstoð annarra héraðsbúa eða hvort hún muni heimsækja þau þúsund Róhingja sem búa í búðum við fljótið Maungdaw í von um að komast til Bangladess. Amnesty International hefur bæst í hóp þeirra samtaka sem gagnrýna ofsóknirnar en í nýrri skýrslu samtakanna segir að mannréttindabrot hersins gegn Róhingjum séu svæsin. Herinn hafi meðal annars drepið hundruð Róhingja. Í skýrslunni er því lýst hvernig herinn heyir „kerfisbundið og vægðarlaust“ stríð gegn Róhingjum. „Í þessari vel útfærðu herferð hafa öryggissveitir Mjanmar hefnt sín grimmilega á gjörvöllu Róhingja-fólkinu í norðurhluta Rakhine-héraði í augljósri tilraun sinni til að hrekja það úr landi. Þessi voðaverk hafa leitt til verstu flóttamannaneyðar í áratugi á svæðinu,“ er haft eftir Tirana Hassan, framkvæmdastjóra neyðarviðbragða hjá Amnesty International.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Fleiri fréttir Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Sjá meira