Vísir ræddi við Ingu og bar meðal annars undir hana orð Illuga Jökulssonar rithöfundar og útvarpsmanns, sem hann ritaði á Facebook-vegg sinn nú í morgun svohljóðandi:
„Inga Sæland táraðist í sjónvarpinu yfir því hvað fátækt fólk, öryrkjar og eldri borgarar ættu erfitt líf á Íslandi. Því næst þáði hún far í glæsikerru milljarðamærings út á Bessastaði þar sem hún lagði til við forseta Íslands að annaðhvort milljarðamæringurinn eða hinn milljarðamæringurinn yrðu fengnir til að mynda ríkisstjórn. Báðir höfðu orðið uppvísir að því að eiga fyrirtæki á aflandseyjum. You can't make this shit up.“
Erfitt að staðsetja Flokk fólksins
Illugi vísar þar til orða Ingu þess efnis að hún hafi mælt með því við forseta Íslands að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins eða Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fengju stjórnarmyndunarumboðið. Illuga þykir þetta hina mestu ósvinnu en Inga gefur ekkert fyrir það og ljóst að henni gremst slíkur málflutningur.
„Ef einhver vill við mig þá hef ég aðeins eitt að leiðarljósi; kurteisi kostar ekkert. Hvað á ég að gera þegar Sigmundur Davíð hringir í mig og spyr hvort hann megi tala við mig? Á ég að skella á hann?“

Bjartsýni og bros bjargar deginum
Inga segist ekki fara inná þessi kommentakerfi, sem hún kallar svo, spurð hvort hún skynji reiði eftir kosningarnar.
„Ég hef lítið verið þarna inni. Hins vegar hef ég fengið fleiri hundruð og þúsundir fallegra kveðja og ofboðslega mikinn stuðning. Ég er óendanlega þakklát. Bjartsýni og bros bjargar deginum en ekki illvilji og neikvæðni. Þeir sem eru tilbúnir endalaust að ata aðra auri án nokkurs samtals eða án þess að hafa hugmynd um hvað þeir eru að setja á blað, ég tek ekki þátt í slíku. Bjartsýni og bros og við erum komin til að vinna fyrir þá sem veittu okkur þetta umboð. Og það verður engin breyting á því.“
Inga er afar kát eftir kosningarnar, enda má hún vera það. Í kosningunum í fyrra fékk hún og Flokkur fólksins um 7 þúsund atkvæði en nú 14 þúsund. „Já, það er gaman. Þetta er ævintýr. en við erum komin í stóra ræðupúltið. Mikilvægasta ræðupúlt landsins. Nú eigum við rödd og hún þagnar ekki.“
En, hvaða rödd er það?
„Nú, rödd okkar þingflokksins. Við erum rödd. Og tölum einum rómi fyrir öryrkja, eldri borgara og almenning.“
Flokkur fólksins óskrifað blað
En, nú eru þetta málefni sem menn tengja fremur við vinstrið en hægrið, af hverju þá að leggja það til við forsetann að hann feli Bjarna eða Sigmundi Davíð stjórnarmyndun?

Vill hvorki skilgreina sig til hægri né vinstri
En, vinstri eða hægri?
„Við höfum bara sagt að við getum unnið með hverjum sem er. Meginmarkmið okkar er að útrýma fátækt. Í rauninni skiptir það mig engu máli hvað sá flokkur heitir sem vill afnema frítekjumarkið strax og koma lágmarks framfærslu hér upp í 300 þúsund krónur. Það er alger forsenda.“
Inga vill ekki taka af nein tvímæli um hvar beri að staðsetja Flokk fólksins á hinum skilgreinandi ási stjórnmálanna.
„Ég skilgreini okkur bara sem hugsjónaafl sem vill hjálpa almenningi í landinu. Nú er að koma vetur. Hefurðu heyrt einhvern tala um fólkið sem býr hér í tjaldi. Okkur ber skylda til að vernda borgarana. Vinna fyrir fólkið. Við erum verkfæri og erum að vinna fyrir fólkið sem kaus okkur og valdi til verksins en ekki að hugsa um eigin hag. Mín rödd breytist ekkert þó ég hafi verið valin til verksins sem ég þráði að vinna.“
Yrði duglegur velferðarráðherra
Í viðtali við Arnþrúði Karldóttur útvarpsstjóra á Útvarpi Sögu í gær kom fram að hún teldi eðlilegast og best ef Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur, Framsóknarflokkur og Flokkur fólksins færu saman í ríkisstjórn. Arnþrúður er ekki ein um þá skoðun. Og útvarpsstjórinn taldi eðlilegt að Inga Sæland tæki við sem velferðarráðherra.
Inga segist ekkert vera farin að hugleiða neitt slíkt. En, segir það vissulega svo að henni tækist betur að vinna að sínum hugsjónum og baráttumálum við völd.
„Ég get alveg lofað þér því að ég væri duglegur velferðarráðherra. En ég er ekki að sækja í stóla. Það er sorgleg staða úti í samfélaginu, fólk kvíðir jólanna. Þar hef ég verið. Hátíð ljóss og friðar. Er það hægt?“