Luis Suárez bjargaði stigi fyrir Barcelona í 1-1 jafntefli gegn Atletico Madrid með skalla þegar stutt var til leiksloka í lokaleik dagsins í spænska boltanum.
Eftir sigur Real Madrid gegn Getafe í dag gátu Börsungar náð sjö stiga forskoti á ný á toppi deildarinnar er þeir mættu á Wanda Metropolitano, heimavöll Atletico sem sat í þriðja sæti fyrir leikinn.
Saul Niguez kom heimamönnum yfir með snyrtilegu skoti á 21. mínútu er hann lagði boltann í fjærhornið og leiddu heimamenn í hálfleik.
Tíu mínútum fyrir leikslok tókst Suárez að jafna fyrir gestina, fékk hann góða sendingu á fjærstöng frá Sergi Roberto og skallaði í netið af stuttu færi.
Reyndist það vera síðasta mark leiksins og skyldu þau því jöfn en eftir leik eru Börsungar með fimm stiga forskot á erkifjenduna í Real Madrid en Valencia getur náð öðru sætinu með sigri á Betis.
Börsungar björguðu stigi gegn Atletico
