
Barnabókin er svarið
Það var á vordögum að við, nokkrir barnabókahöfundar endurvöktum samtök okkar barna- og unglingabókahöfunda, seim heita SÍUNG. Við gerðum það vegna þess að okkur lá svolítið á hjarta. Við vorum meira að segja frekar æst. Eða ég var það að minnsta kosti. Það var nefnilega þannig að alveg frá því að PISA niðurstöðurnar birtust síðasta vetur fór af stað mikil og þörf umræða um stöðu læsis og lesturs og menntunarárangur barnanna okkar í beinu framhaldi. Já, og líka um útrýmingarhættu íslenskunnar.
Sérfræðingar og stjórnmálamenn tjáðu sig í ræðu eða riti hver á fætur öðrum, en engum þeirra datt í hug að nefna tækið sem þarf að nota til að efla lestraráhuga barnanna okkar. Engum datt í hug að tala um barnabókina. Það er eins og að horfa á fisk og vilja veiða hann, skrifa síðan langa grein um það af hverju við getum ekki veitt þennan fisk en sjáum ekki og nefnum ekki togarann sem er við hliðina á okkur. Því ákváðum við í SÍUNG að blanda okkur og barnabókinni í umræðuna. Við ákváðum að setja barnabókina á oddinn.
Það hefur semsagt mikið verið rætt um það af hverju börnunum okkar er að fara aftur í lestri og námsárangri og af hverju bóksala minnkar. Er það af því að við, fullorðnu fyrirmyndirnar, erum sjálf hætt að lesa annað en það sem stendur á símanum okkar eða tölvunni? Er kannski of mikið einblínt á það neikvæða þannig að börnin okkar eru farin að trúa því sjálf að þau séu ömurleg?
Eða liggur vandinn hjá hinu opinbera? Þarf að bæta aðbúnað bókarinnar? Ratar hún til barnanna? Svör við þessum spurningum komu fram á málþinginu. Til dæmis að það eru engin lög um skólabókasöfn landsins önnur en að þau eigi eiginlega að vera til. Það er algerlega undir hælinn lagt og fer eftir geðþótta skólastjóranna hvort og þá hve mikið fé bókasöfnin fá til bókakaupa. Sum bókasöfn geta aldrei keypt nýjar bækur. Þannig rata bækurnar ekki til lesendanna. Það kom sömuleiðis fram að við Íslendingar framleiðum of fáar barnabækur fyrir þá sem virkilegan áhuga hafa á lestri.
Það kom líka fram að Norðmenn líta á tungumálið sitt sem mál í útrýmingarhættu. Þeir eru 5.234.252. Við erum 334.252. Það munar ekki nema 4,9 milljónum manna. Þeir kaupa allar góðar barnabækur í ákveðnu upplagi til að setja á bókasöfnin. Þannig verður útgáfan öruggari og fleiri góðir höfundar nenna að skrifa fyrir börn því það borgar sig allt í einu.
Fyrir skömu var ráðist í Þjóðarsáttmála um læsi, gerð var hvítbók og allskonar. Ingó veðurguð var ráðinn til að syngja „Það er gott að lesa“ og okkur rithöfundum var ekki skemmt. Þarna var ráðinn maðurinn sem hvað hæst hrópaði að rithöfundalaun séu rugl. Reyndar má geta þess að í vor og fram á haust hefur mikil samvinna átt sér stað á milli Menntamálastofnunar og SÍUNG og annarra er vinna að þessum málum. Þannig að Menntamálastofnun er lykilstofnun sem á frumkvæði að kröftugum samstarfsverkefnum.
En við ættum kannski að tala saman um það hvað rithöfundalaun geta gert fyrir barnabókahöfunda og börnin í þessu landi og þá um leið fyrir íslenskuna? Reyndar er mín skoðun sú að það ætti að stækka sjóð rithöfundalauna og eyrnamerkja hluta hans barnabókahöfundum. Það er eitthvað svo augljós og einföld aðgerð! Er það ekki? Gestir málþingsins voru mér sammála og þar voru allir helstu sérfræðingar landsins á þessu sviði. Þarna var fólk frá Menntamálastofnun og Miðstöð skólaþróunar, skólastjórar og barnasálfræðingar og allir voru sammála um þetta atriði.
Það hefði verið frábært að sjá frambjóðendur til Alþingis á þessu málþingi en þeir hafa sennilega verið uppteknir við eitthvað merkilegra en framtíð barnanna okkar. Þeir sáu sér að minnsta kosti engan hag í því að koma og hlusta á þá sem töluðu á málþinginu. Þrátt fyrir það að hafa margir hverjir skrifað blaðagreinar um þessi mál, eins og Lilja Alfreðsdóttir gerði hér um daginn þegar hún sagðist vilja afnema virðisaukaskattinn af bókum. (Sem er alveg stórkostlegt hjá henni og algerlega nauðsynlegt.)
Af hverju er stjórnmálamönnum (nema einni konu) alveg sama um framgang íslenskunnar, menntunar og læsis? Þeim er það sennilega ekki en stundum verður maður að taka sterkt til orða. Til að hjálpa þeim og þér, lesandi góður, ákvað ég að taka saman niðurstöður málþingsins og birta hér. Þetta er það sem yfir 200 sérfræðingar í þessu máli vilja að þið sem komist á þing eftir tvær vikur ákveðið og gerið:
1. Börn og unglingar verða að hafa aðgang að bókum.
2. Það verður að efla skólabókasöfn með lögum, reglugerðum og peningaframlögum. Þetta má ekki vera háð ráðherraskiptum.
3. Það verður að efla útgáfu barnabóka með því að kaupa lágmarksupplag góðra bóka sem dreifast svo á bókasöfnin.
4. Það verður að auka framlög í launasjóð rithöfunda og myndskreyta. Viðbótin verður eyrnamerkt þeim sem skrifa og myndskrifa fyrir börn og unglinga.
5. Það verður að setja yndislestur á stundarskrá í skólum. Börn verða að fá frið til að lesa.
6. Foreldrar og kennarar verða að vera lestrarfyrirmyndir. Ungur nemur hvað gamall temur.
7. Samstarf allra aðila er lykilatriði. Menntamálastofnun, SÍUNG, Rithöfundasambandið, Félag íslenskra bókaútgefenda, KrakkaRÚV, Heimili og skóli, Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO, kennarar, foreldrar, sveitarfélögin, Miðstöð skólaþróunar, háskólarnir, Alþingi, Menntamálaráðuneytið: allir verða að vinna saman.
8. BARNABÓKIN ER SVARIÐ!
Málþingið var aðeins fyrsta skrefið í því að setja barnabókina á oddinn til að efla börnin okkar, lestur, læsi og íslenskuna. Nú á næstu vikum fer til dæmis af stað mikil dagskrá á KrakkaRÚV sem miðar að þessu. Grasrótin iðar og nú þurfa stjórnmálin að vakna.
Höfundur er leikari, rithöfundur og formaður SÍUNG
Skoðun

Ójafnvægi í jöfnunarkerfinu
Anna Sigríður Guðnadóttir,Halla Karen Kristjánsdóttir,Lovísa Jónsdóttir skrifar

Það sem ekki má segja um það sem enginn vill sjá
Viðar Hreinsson skrifar

Krónan, Nettó, Hagkaup, Bónus - það er kominn tími á formlega sniðgöngu
Helen Ólafsdóttir skrifar

Löggæslumál og aðstöðuleysi í Búðardal – ákall um viðbragð og aðgerðir
Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar

Listin að verða fullkomlega ósammála sjálfri sér á mettíma
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Þingmenn auðvaldsins
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Arðgreiðslur í sjávarútvegi: Staðreyndir gegn fullyrðingum
Elliði Vignisson skrifar

Verðugur bandamaður?
Steinar Harðarson skrifar

Við þurfum nýja sýn á stjórnmál okkar - Mamdani-sýn
Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar

Sósíalistaflokkurinn heimilislaus - hvað næst?
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Rán um hábjartan dag
Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar

Af hverju er verðbólga ennþá svona há?
Ólafur Margeirsson skrifar

Sól, sumar og símafriður: 10 ráð varðandi skjánotkun í sumarfríinu
Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

Uppbygging hjúkrunarheimila
Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar

Jafnrétti grundvallarforsenda friðar og öryggis í heiminum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Með skynsemina að vopni
Anton Guðmundsson skrifar

Af hverju er ekki 100 klst. málþóf á Alþingi um alvarlega stöðu barna?
Grímur Atlason skrifar

Knattspyrna kvenna í hálfa öld – þakkir til Eggerts Magnússonar
Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar

80.000 manna klóakrennsli í Dýrafjörð í boði Arctic Fish
Jón Kaldal skrifar

Malað dag eftir dag eftir dag
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Að velja friðinn fram yfir réttlætið
Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar

Af nashyrningum og færni - hvernig sköpum við verðmæti til framtíðar?
Guðrún Högnadóttir skrifar

Hvað er þetta græna? Karlinn er að spræna
Jóhanna Jakobsdóttir skrifar

Heilbrigðisþjónusta á krossgötum?
Einar Magnússon,Gunnar Alexander Ólafsson skrifar

Frestur til að skila athugasemdum við nýtt deiliskipulag Heiðmerkur að renna út
Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar

Stjórnarandstaðan hindrar kjarabætur
Rúnar Sigurjónsson skrifar

Af hverju útiloka Ísrael frá Eurovision eins og Rússland?
Stefán Jón Hafstein skrifar

Lífeyrir skal fylgja launum
Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar

Fánar, tákn og blómabreiður: „Enginn bjó á Íslandi fyrr en einhver kom“
Meyvant Þórólfsson skrifar

Hvernig er staða lesblindra á Íslandi?
Guðmundur S. Johnsen skrifar