Í morgun birtist í Fréttablaðinu grein eftir Sigmund Davíð undir fyrirsögninni „Málalok“. Þar greinir hann frá því að yfirskattanefnd hafi komist að þeirri niðurstöðu að Anna Sigurlaug hafi ofgreitt skatt vegna Wintris. Sé litið til fyrirsagnar greinar Sigmundar og niðurlags greinar hans þess efnis að nú bíði ný tækifæri og verkefni, þá virðist hann vilja meina að málinu sé þar með lokið. En, hann segir í grein sinni:
Málinu lokið, eða þannig
„Ef til vill ætti maður að þakka sjónvarpsmönnum fyrir að benda á að eiginkona mín geti sparað sér skattgreiðslur. Mér hefði þó þótt heiðarlegra að sú ábending bærist með öðrum hætti en raun varð. Ef heiðarleg vinnubrögð hefðu verið viðhöfð og ég eða kona mín einfaldlega verið spurð út í félagið hefði verið hægt að veita allar upplýsingar eins og raunar var gert. Það var hins vegar ekkert tillit tekið til skýringanna því búið var að skrifa handrit fyrir fram,“ skrifar Sigmundur en þar er vísað til Kastljóss Ríkissjónvarpsins og hins fræga þáttar um Panamaskjölin, sem segja má að hafi leitt til þess að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs hrökklaðist frá völdum.
„Dæma á RÚV fyrir landráð“
Einarðir stuðningsmenn Sigmundar Davíðs virðast ekki taka fyrirsögn greinar hans mjög hátíðlega, um málalok, heldur hafa tekið boltann á loft. Guðfinna Jóh Guðmundsdóttir borgarfulltrúi er ein þeirra og hefur hún farið mikinn á Facebook nú í nótt og í morgun.

Málshefjandi segir þetta skammarlegt og Anna Björg Hjartardóttir bíður eftir afsökunarbeiðni frá RÚV og fleirum. „Sigmundur sagði satt allan tímann.“ Og hún heldur áfram: „Það eiga að fara fréttatilkynningar á heimspressuna um lygar RÚV sem hannaði og laug upp ásökunum á forsætisráðherrann, gerðist jafnframt dómari í málinu og fór svo í aðför að þeim hjónum þar til ríkisstjórnin féll.“
„RUV laug uppí opið geðið á fólki“
Og þannig gengur dælan á vegg borgarfulltrúans. Ljóst er að Ríkisútvarpið á ekki uppá pallborðið meðal aðdáenda Sigmundar Davíðs. Alda Jónsdóttir segir: „Það var RUV sam þarna laug upp í opið geðið á fólki...með því að halda til baka rettum uppysingum Og ota fram hinu gagnstæða...“
Svipað er uppi á teningnum hjá Birni Inga Hrafnssyni fjölmiðlamanni með meiru. Hann segir alvarlegur í bragði: „Hefðu nú margir mátt spara stóru orðin í þessu máli. En þetta liggur þá fyrir. Wintrismálinu er formlega lokið hjá íslenskum skattayfirvöldum. Niðurstaðan er skýr: Ofgreiddir skattar og engin tilraun gerð til að koma fé undan. Ég hugsa að margir hugsi sitt í dag.“
Galinn spuni
Og, margir hugsa sitt en niðurstaðan er kannski ekki sú að Ríkisútvarpið hafi framið valdarán. Fjölmargir á Facebook reyna að benda hinum reiðu aðdáendum Sigmundar Davíðs á að þetta sé strámaður, Sigmundur hafi ekkert verið sakaður um skattsvik heldur fyrst og fremst það að leyna hagsmunum sínum. Og aðrir að hér sé um að ræða afar vafasaman spuna. Hjálmar Gíslason frumkvöðull og fjárfestir er einn þeirra
„Leiðréttið mig ef eitthvað í þessu er rangt:
* Sigmundur Davíð og frú senda inn nýjar skattaskýrslur *eftir* að upp kemst um Wintris málið, og gera samkomulag við RSK um að greiða skatta sem þau héldu að þau kæmust upp með að greiða ekki af því að enginn vissi af eignunum. Við vitum ekki hver þessi upphæð er.
* Hluta málsins (uppgjörsmynt félagsins) er skotið til yfirskattanefndar sem *lækkar* óþekktu greiðsluna um 50 m.kr. (við getum þá ímyndað okkur að hún hafi a.m.k. verið hærri en það)
* Og spinnið er að þetta sýni að þau hafi greitt alla skatta og meira að segja of mikið, og þannig sé málið allt þeim í hag?

Hvítþvottur og fórnarlambsvæðing
Þorleifur Örn Arnarson leikstjóri er annar sem segir blasa við að hér sé um spuna að ræða:
„Sigmundur Davíð og frú senda inn nýjar skattaskýrslur EFTIR að upp kemst um Wintris málið, og gera samkomulag við RSK um að greiða skatta sem þau héldu að þau kæmust upp með að greiða ekki af því að enginn vissi af eignunum. Við vitum ekki hver þessi upphæð er.
Hluta málsins (uppgjörsmynt félagsins) er skotið til yfirskattanefndar sem lækkar óþekktu greiðsluna um 50 m.kr. Þetta þýðir að upphæðin var hærri en það.
Spuni þeirra hjóna er því að þetta sýni að þau hafi greitt alla skatta og meira að segja of mikið, og þannig sé málið allt þeim í hag.“
Þorleifur Örn vill meina að Fréttablaðið, sem greindi frá málinu í morgun, hafi ekki séð í gegnum þetta: „Vel gert í hvítþvotti og fórnarlambavæðingu fólks sem augljóslega ætlaði sér að stinga þessu undan og vissu að tilvist þessa félags myndi gera pólitískri baráttu Sigmundar erfitt fyrir.“
Og þannig má áfram telja. Margir vísa í umfjöllun Kjarnans frá í morgun. Dæmin eru fjölmörg, enn og aftur hefur Wintis kveikt elda sem loga glatt á Facebook.