Trump kom fram í Alabama á föstudaginn og hélt ræðu þar sem hann sagði: „Þætti ykkur ekki frábært að sjá einn af þessum NFL eigendum, þegar einhver sýnir fánanum okkar vanvirðingu, segja „Takið þennan tíkarson af vellinum núna strax, hann er rekinn.““
„Sá eigandi [sem rekur leikmann vegna þessa] mun verða vinsælasta manneskja landsins,“ sagði forsetinn. Hann biðlaði einnig til áhorfenda að yfirgefa leikvanga þegar þeir sjá mótmæli leikmanna og uppskar mikinn fögnuð viðstaddra.
Ýmsir fótbolta- og körfuboltamenn hafa harðlega gagnrýnt forsetann vegna ummælanna. Roger Goodell, yfirmaður NFL–deildarinnar, sendi einnig frá sér tilkynningu þar sem hann sagði að ummælin væru einungis til þess að skapa sundrung og sýndu „óheppilegan skort á virðingu,“ að því er fram kemur í frétt BBC.
Trump brást þá einnig við ummælum Goodell á Twitter og sagði honum að skikka leikmenn til að standa undir þjóðsöngnum.
Roger Goodell of NFL just put out a statement trying to justify the total disrespect certain players show to our country.Tell them to stand!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) September 23, 2017
Eftir mótmæli Kaepernick fóru fleiri leikmenn að leika þetta eftir og krjúpa á kné undir þjóðsöngnum, eða lyfta hnefa á loft. Þess má geta að Kaepernick er ekki á samningi hjá neinu liði í NFL-deildinni sem stendur og vilja margir meina að það megi rekja til mótmæla hans.
Stéttarfélag NFL-leikmanna hefur einnig blandað sér í málið og segir að forsetinn hafi gengið of langt með því að segja leikmönnum að „halda kjafti og spila.“ Eric Winston, forseti The NFL Players‘ Association, sagði að ummæli forsetans væru eins og blaut tuska í andlit þeirra sem barist hafi fyrir mannréttindum svartra í gegnum tíðina.
A’s Bruce Maxwell just took a knee during anthem. He is the first in #MLB to do it. @sfchronicle@SFGate#baseball#Oakland#athleticspic.twitter.com/xJMeAskC4z
— Santiago Mejia (@SantiagoMejia) September 24, 2017
Hann sagðist vilja krjúpa fyrir þá raddlausu og þvertók fyrir að sýna landi sínu eða fána vanvirðingu, en faðir hans er í bandaríska hernum.

Curry sagðist vilja sýna að hann og liðsfélagar hans stæðu ekki fyrir það sem forsetinn hefur sagt.
LeBron James kom þá kollega sínum í NBA-deildinni til varnar og kallaði forsetann ónytjung.
„Það var heiður að heimsækja Hvíta húsið þangað til þú birtist,“ skrifaði James og körfuboltastjarnan Kobe Bryant blandaði sér einnig í umræðurnar.
Going to the White House is considered a great honor for a championship team.Stephen Curry is hesitating,therefore invitation is withdrawn!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) September 23, 2017
U bum @StephenCurry30 already said he ain't going! So therefore ain't no invite. Going to White House was a great honor until you showed up!
— LeBron James (@KingJames) September 23, 2017
A #POTUS whose name alone creates division and anger. Whose words inspire dissension and hatred can't possibly "Make America Great Again"
— Kobe Bryant (@kobebryant) September 23, 2017