Ólíkar skoðanir á breytingum hjá Twitter Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 28. september 2017 06:00 Jack Dorsey, forstjóri Twitter. Fréttablaðið/EPA
Samfélagsmiðillinn Twitter hefur ákveðið að prófa að auka hámarksslagafjölda tísta úr 140 í 280. Einungis nokkrir útvaldir geta nú tíst 280 slögum og hafa breytingarnar lagst misvel í fólk. Jafnt þekktir Íslendingar sem útlendingar hafa tjáð sig á miðlinum um málið. Hörður Ágústsson, kenndur við Macland, sagði til dæmis að hann myndi eingöngu nota 140 slög þrátt fyrir ætlaða fjölgun í 280. Þá spurði íslenskuprófessorinn Ármann Jakobsson fylgjendur sína hver mesta hættan væri við fjölgun slaga. Hvort mest hætta væri á að Twitter yrði önnur Facebook eða hvað annað gæti gerst. Kvikmyndagerðarmaðurinn Gaukur Úlfarsson hæddist að breytingunni. „Nú get ég loksins sagt ykkur söguna af uppáhaldsfrænda mínum og þegar hann fann fimmhundruðkall,“ tísti hann. Sjónvarpskonan Ellen DeGeneres virðist ekki ein hinna útvöldu. „Ég er svo spennt yfir að vera hluti af 280 slaga hópi Twitter. Þetta er mér sannur heiður og forréttindi. Ég vil þakka fráb,“ tísti DeGeneres sem gat ekki klárað tíst sitt, líklegast þar sem hún má enn bara tísta 140 slögum. Jack Dorsey, forstjóri Twitter, birti í gær færslu þar sem hann sagðist hafa búist við, og væri ánægður með, gagnrýnina á breytinguna. Það sem skipti máli nú væri að sýna hvers vegna breytingin væri mikilvæg.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Innlent Fleiri fréttir Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Sjá meira