Æskuvinir vottuðu fyrir Robert Downey Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 12. september 2017 17:51
Í samræmi við úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem birtur var á vef dómsmálaráðuneytisins fyrr í dag veitti ráðuneytið rétt í þessu aðgang að gögnum sem Robert Downey, áður Róbert Árni Hreiðarsson, lagði fram með beiðni sinni um uppreist æru. Í umsókn sinni um uppreist æru skrifaði Robert Downey meðal annars:„Þar sem nú eru liðin rúm tvö og hálft ár frá því að ég lauk afplánun og þar sem ég hef síðan lifað reglusömu og heiðarlegu lífí, leyfi ég mér að fara þess á leit, að mér verði veitt uppreisn æru því er þetta varðar.“ Með umsókn sinni skilaði Robert Downey þremur vottorðum. Vottorðin skrifuðu Viðar Marel Jóhannsson, Gautur Elvar Gunnarsson og Halldór Einarsson. Umsóknin var stipluð þann 17. september 2014. Þrír einstaklingar vottuðu fyrir Robert Downey. Halldór Einarsson vinur Roberts frá barnæsku, Viðar Marel Jóhannsson vinur Roberts í 45 ár og Gautur Elvar Gunnarsson lögfræðingur sem segist í sínu bréfi hafa þekkt Róbert um langa hríð bæði persónulega og í starfi.Sendi ítrekun eftir fréttir um uppreist æru 11. apríl 2016 sendi Robert Downey ítrekun á beiðni sinni á innanríkisráðuneytið. Bréfið var stílað á Ólaf Ragnar Grímsson og Ólöfu Nordal. Í ítrekun sinni óskaði Robert eftir svari eigi síðar en 1. maí sama ár. Bað hann um að fá svör líka í tölvupósti þar sem hann væri mikið erlendis. „Ég fékk reynslulausn hinn 2. febrúar 2011 og hef ekki gerst brotlegur við þær reglur, sem um afplánun gilda og leitt gætu til þess, að ákvörðun um veitingu reynslulausnar væri afturkölluð. Það eru því liðin rúm fimm ár síðan ég lauk afplánun refsingar og í ljósi síðustu frétta af veitingu uppreinsar æru, tel ég rétt að ítreka beiðni mína nú. En sá aðili, sem hana síðast fékk, að ég best veit, hafði fengið margfallt þyngri dóm en ég.“Hegðað sér óaðfinnanlega „Ég hef þekkt Robert frá barnæsku og get ég fullyrt með góðri samvisku, að hann hefur hegðað sér óaðfinnanlega í lífi og starfi frá því, að hann kom úr fangelsi. Á milli okkar er mikil og góð ævavarandi vinátta, traust og trúnaður,“ skrifaði Halldór Einarsson í sínu bréfi til innanríkisráðuneytisins. Halldór er eigandi Henson sem framleitt hefur íþrótafatnað undir samnefndu merki í tugi ára.Halldór Einarsson eigandi Henson var einn þeirra sem skrifaði umsögn um Robert Downey.FRÉTTABLAÐIÐ/GVAGautur Elvar Gunnarsson segist hafa þekkt Róbert Árna Hreiðarsson um langa hríð. Skrifaði hann meðal annars: „Þekki ég hann af góðu einu, bæði í persónulega í starfi. Ég mæli eindregið með því að Róbert fái uppreisn æru og tel ég hann verðugan til þess. Þá veit ég til þess að hann hefur hagað sér óaðfinnanlega síðan hann fékk reynslulausn.“„Endurtekur sig ekki“ „Dugnaður, ósérhlífni, hjálpsemi eru þau orð sem koma upp í hugann, þegar lýsa á Róbert Árna Hreiðarssyni Downey. Ég hef þekkt Róbert Árna í rúm 45 ár og hefur aldrei borið skugga á vinskap okkar. Róbert Árna er gott að eiga að vini. Hann er alltaf reiðubúinn að rétta fram hjálparhönd og vera vinur vina sinna. Hann hefur alla tíð reynst mér traustur og heiðarlegur bæði sem ráðgjafi og vinur,“ skrifar Viðar Marel Jóhannson í sinni umsögn. Segir hann enn fremur að allir sem til þekkja geti borið vitni um að Róbert Árni muni í alla staði reynast traustsins verður. „Ég veit, að mannkostir hans munu reynast honum vel, og að slíkt, sem hann var dæmdur fyrir endurtekur sig ekki.“ Robert Downey fékk uppreist æru þann 16. september í fyrra. Hæstiréttur staðfesti svo í júní síðastliðnum úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að Robert gæti fengið lögmannsréttindi sín á ný. Hann var dæmdur í þriggja ári fangelsi árið 2008 fyrir kynferðisbrot gegn nokkrum ungum stúlkum.
Uppreist æru Tengdar fréttir Greint verður frá því hverjir hinir valinkunnu menn eru Fjölmiðlar aðgang að gögnum um Róbert Downey en með takmörkunum. 12. september 2017 12:15 Forsetinn ómyrkur í máli um uppreist æru: „Við óbreytt ástand verður ekki unað“ Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hvatti til þess við þingsetingu í dag að við endurskoðun á stjórnarskrá íslands verði sérstaklega lögð áhersla á að skerpa línur um hlutverk og ábyrgð forseta. 12. september 2017 14:58 Mest lesið Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Innlent Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Innlent Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Innlent Fjöldauppsagnir á Keflavíkurflugvelli Innlent Bílstjórinn þrettán ára Innlent Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Erlent Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Erlent Lítur svo á að hann njóti ekki trausts og hefur beðist lausnar Innlent Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Innlent Kallar þjóðaröryggisráð saman Innlent Fleiri fréttir Þurftu að finna lausn á uppskáldaðri hryðjuverkaárás á Íslandi Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Ísland land númer 197 Skiptastjóri þurfi að ákveða hvort hann geri kröfu í dótturfélag Play Fjöldauppsagnir á Keflavíkurflugvelli Gjaldþrotið leiðir til hópuppsagnar og afarkostir Bandaríkjaforseta Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Strandaglópar slaga í tuttugu þúsund Sultuslakir strandaglópar eftir heilsuferð til Split Kallar þjóðaröryggisráð saman Verulegt högg fyrir ferðaþjónustuna Eftirköstin af gjaldþroti Play og friðaráætlun á Gasa Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Áhyggjur landsmanna af útbreiðslu hernaðarátaka í Evrópu aukast Hættir sem þingflokksformaður Sundlaugar borgarinnar verði bættar fyrir ungbarnafjölskyldur Hópslagsmál og hundaárás Vonsviknir ferðamenn og reiði út í Icelandair vegna hækkunar fargjalda Arnarflug lifað lengst í samkeppni við Icelandair Fall Play frá öllum hliðum Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Þriggja ára fangelsi: Tók ekki mark á lygilegri frásögn Neyðast til að millilenda, tapaður peningur og rándýr flug heim Lítur svo á að hann njóti ekki trausts og hefur beðist lausnar Banaslys á Skagavegi 2024: Drukknaði eftir að hafa misst stjórn í beygju Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Bein útsending: Lýðheilsuvísar 2025 kynntir Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg „Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ Play hættir að fljúga, hundruð missa vinnuna og strandaglópar í Leifsstöð Sjá meira
Greint verður frá því hverjir hinir valinkunnu menn eru Fjölmiðlar aðgang að gögnum um Róbert Downey en með takmörkunum. 12. september 2017 12:15
Forsetinn ómyrkur í máli um uppreist æru: „Við óbreytt ástand verður ekki unað“ Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hvatti til þess við þingsetingu í dag að við endurskoðun á stjórnarskrá íslands verði sérstaklega lögð áhersla á að skerpa línur um hlutverk og ábyrgð forseta. 12. september 2017 14:58