Vetnissprengjan gæti hafa verið öflugri en talið var Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 14. september 2017 06:00 Kim Jong-un lét sprengja 250 kílótonna vetnissprengju. ?Nordicphotos/AFP
Vetnissprengjan sem norðurkóreski herinn sprengdi neðanjarðar fyrr í mánuðinum gæti hafa verið mun öflugri en upphaflega var talið. Þetta sýna niðurstöður Kóreustofnunar John Hopkins-háskóla í Bandaríkjunum. Upphaflega var kraftur sprengjunnar talinn vera á bilinu fimmtíu til 160 kílótonn en til samanburðar var kraftur sprengjunnar sem Bandaríkjamenn vörpuðu á Hírósíma í síðari heimsstyrjöld um fimmtán kílótonn. Samkvæmt hinni nýju rannsókn var kraftur vetnissprengjunnar, sem sprengd var þann 3. september, hins vegar um 250 kílótonn. Tilraunin vakti mikla reiði heimssamfélagsins og voru nýjar viðskiptaþvinganir gegn einræðisríkinu samþykktar í vikunni. Þá búa Bandaríkin og Suður-Kórea sig nú undir hið versta. Jim Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, heimsótti kjarnorkuvopnabúr í Norður-Dakóta í gær. Þar eru rúmlega hundrað kjarnorkueldflaugar geymdar sem og herflugvél sem ætlað er að varpa kjarnorkusprengjum. Suður-Kóreumenn standa aftur á móti í stífum heræfingum þessa dagana.
Norður-Kórea Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira