Sjanghæ – æj! Sirrý Hallgrímsdóttir skrifar 9. september 2017 07:00 Þetta er dularfullt og kallar á rannsókn. Kínversk kona opnar kínverskan veitingastað á Akureyri. Ef þetta er ekki uppskrift af mansali þá veit ég ekki hvað. Það hefði alveg eins getað verið stórt skilti utan á veitingastaðnum – mannrán og mansal – og eins gott að við höfum RÚV. Síðan reynist þetta allt rugl, ekkert mansal. Og þá byrja allir að skammast í RÚV fyrir óvönduð vinnubrögð. En það er ómaklegt. Í fyrsta lagi er krafa um að fréttastofa RÚV eigi ekki að fara fram með svona frétt, sem geti haft meiðandi áhrif nema hún hafi unnið alla heimildavinnu sína vel og rækilega, mjög ósanngjörn. Ef fréttastofan á að vinna eftir slíkum íþyngjandi reglum tæki eilífð að gera fréttir. Fréttin á að fara strax í loftið og svo getur kínverska konan sannað sakleysi sitt eins og aðrir. Í öðru lagi þá væri það brot á tjáningarfrelsi fréttamanna RÚV að setja þá undir strangar reglur um vönduð vinnubrögð. Möguleikar fréttamanna RÚV til að berjast fyrir því sem þeir vita að er satt og rétt væru verulega þrengir með gamaldags kröfum um slík vinnubrögð. Í þriðja lagi þá gerist næstum aldrei neitt á Akureyri. Loksins þegar eitthvað gerist, á þá að bíða með fréttina þangað til í ljós kemur að ekkert hafi gerst? Auðvitað á RÚV ekki að biðjast afsökunar, það væri fráleitt. Þessi kínverska kona gat sagt sér það sjálf að það væri óeðlilegt að opna veitingastað á Akureyri. Best að bíða, þetta gengur yfir á næstu dögum. Síðan getur fréttastofan haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist. Höfundur er pistlahöfundur Fréttablaðsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Sirrý Hallgrímsdóttir Mest lesið En stelirðu miklu... Ögmundur Jónasson Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir Skoðun Menntun fyrir mennsku Fanney Dóróthe Halldórsdóttir Skoðun Halldór 11.07.2026 Halldór Minnir á kafla úr bók Franz Kafka Sigurður Páll Jónsson Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Krónuskatturinn á kynslóðirnar: mesti skattur Íslandssögunnar Baldur Pétursson Skoðun Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir Daníel Ágúst Gautason Skoðun Kannski erum við að spyrja rangra spurninga Haukur Logi Jóhannsson Skoðun
Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun
Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun