Bifreið brann við Heiðmerkurveg Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. ágúst 2017 06:38 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kom víða við í gærkvöldi og nótt. Vísir/Eyþór
Laust eftir eitt í nótt var tilkynnt um eld í bifreið á Heiðmerkurvegi nærri tjaldstæði. Bifreiðin var brunnin og ónýt þegar lögregla kom á staðinn. Eldsupptök eru enn ókunn en bifreiðin var flutt af vettvangi, að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Um klukkan fimm síðdegis í gær var bifreið stöðvuð í Stúfholti í Reykjavík. Ökumaður bifreiðarinnar reyndist hafa verið ítrekað stöðvaður réttindalaus við akstur. Í gær var engin breyting þar á en maðurinn var ökuréttindalaus. Lögregla lagði því hald á lykla bifreiðarinnar.Kölluð út tvisvar vegna sama mannsinsÁ sjötta tímanum í gær hafði lögregla afskipti af manni í Stigahlíð vegna vörlsu fíkniefna. Málið var afgreitt á vettvangi. Laust fyrir tíu í gærkvöldi, um fimm klukkustundum síðar, var sami maður handtekinn ofurölvi í Stigahlíðinni. Hann var þar til vandræða sökum ástands og var vistaður í fangageymslu meðan ástand hans lagast. Þá var ofurölvi maður handtekinn í húsi við Tjarnargötu þar sem starfrækt er félagsleg þjónusta. Hann var einnig vistaður í fangageymslu lögreglu.Stálu vespu í Breiðholti og maður handtekinn á nærbuxunumLaust eftir miðnætti í gær voru tveir menn handteknir við Engihjalla. Mennirnir voru í annarlegu ástandi og grunaðir um nytjastuld á bifhjóli (vespu) og vörslu fíkniefna. Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. Þá var maður handtekinn í annarlegu ástandi við Seljabraut. Hann hafði valdið ónæði og stóð á nærbuxum einum klæða er lögregla kom að honum. Hann var einnig vistaður í fangageymslu meðan ástand hans lagast.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira