Ásdís ellefta í úrslitum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. ágúst 2017 19:00 Ásdís kastaði lengst 60,16 metra í úrslitunum. visir/getty Ásdís Hjálmsdóttir endaði í 11. sæti í úrslitum í spjótkasti á HM í frjálsum íþróttum sem fer fram á Lundúnaleikvanginum. Þetta var frumraun Ásdísar í úrslitum á HM. Hún tryggði sér sæti þar með því að kasta 63,06 metra í undanúrslitunum á sunnudagskvöldið. Ásdís endaði einnig í 11. sæti á Ólympíuleikunum í London fyrir fimm árum. Frjálsíþróttakeppnin fór þá einnig fram á Lundúnaleikvanginum sem Ásdís virðist kunna vel við sig á. Ásdís byrjaði á því að kasta 57,38 metra og var í 10. sæti eftir fyrstu umferðina. Köstin hjá flestum lengdust í annarri umferðinni, þ.á.m. Ásdísi sem kastaði 60,16 metra og lyfti sér upp í 9. sætið. Ásdís átti möguleika á að komast inn í átta kvenna úrslit með góðu kasti í þriðju umferðinni. Það gekk ekki eftir því hún gerði ógilt. Ásdís var í 10. sæti en lækkaði svo um eitt sæti og 11. sætið því niðurstaðan.Uppfært 19:50Barbora Spotáková hrósaði sigri en lengsta kast hennar var 66,76 metrar. Lingwei Li frá Kína varð önnur með kast upp á 66,25 og landa hennar, Huihui Lyu, þriðja með 65,26 metra kast.
Ásdís Hjálmsdóttir endaði í 11. sæti í úrslitum í spjótkasti á HM í frjálsum íþróttum sem fer fram á Lundúnaleikvanginum. Þetta var frumraun Ásdísar í úrslitum á HM. Hún tryggði sér sæti þar með því að kasta 63,06 metra í undanúrslitunum á sunnudagskvöldið. Ásdís endaði einnig í 11. sæti á Ólympíuleikunum í London fyrir fimm árum. Frjálsíþróttakeppnin fór þá einnig fram á Lundúnaleikvanginum sem Ásdís virðist kunna vel við sig á. Ásdís byrjaði á því að kasta 57,38 metra og var í 10. sæti eftir fyrstu umferðina. Köstin hjá flestum lengdust í annarri umferðinni, þ.á.m. Ásdísi sem kastaði 60,16 metra og lyfti sér upp í 9. sætið. Ásdís átti möguleika á að komast inn í átta kvenna úrslit með góðu kasti í þriðju umferðinni. Það gekk ekki eftir því hún gerði ógilt. Ásdís var í 10. sæti en lækkaði svo um eitt sæti og 11. sætið því niðurstaðan.Uppfært 19:50Barbora Spotáková hrósaði sigri en lengsta kast hennar var 66,76 metrar. Lingwei Li frá Kína varð önnur með kast upp á 66,25 og landa hennar, Huihui Lyu, þriðja með 65,26 metra kast.
Frjálsar íþróttir Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Leik lokið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjá meira