Í höndum dómara hvort foreldrar Charlie Gard fá að fara með hann heim Kjartan Kjartansson skrifar 26. júlí 2017 11:40 Connie og Chris Gard vildu upphaflega flytja Charlie til Bandaríkjanna en læknar og dómstólar töldu tilraunameðferð þar aðeins myndu skaða drenginn. Vísir/EPA
Foreldrar langveika drengsins Charlie Gard berjast nú fyrir því að fá að hafa hann heima síðustu dagana áður en slökkt verður á öndunarvél hans. Breskur dómari mun úrskurða um kröfur þeirra í dag. Charlie er ellefu mánaða gamall og þjáist af sjaldgæfum og banvænum sjúkdómi. Barátta foreldra hans til að fá að fara með hann til Bandaríkjana í umdeild meðferð hefur vakið heimsathygli. Connie og Chris Gard, foreldrar Charlie, hafa gefist upp á þeirri baráttu en vilja nú fara með hann heim og eyða nokkrum dögum með honum þar áður en hann verður tekinn úr öndunarvélinni sem hefur haldið í honum lífinu. Læknar hans hafa sagt að það sé ómögulegt að færa allan nauðsynlegan búnað heim til foreldra hans. Þá gætu sérfræðilæknar ekki annast hann á heimilinu. Lögmenn Gard-fjölskyldunnar saka Great Ormond Street-sjúkrahúsið um að leggja steina í götu hennar í sífellu. Dómari hefur gefið foreldrunum frest þangað til í dag til að finna sérfræðinga sem eru tilbúnir að annast Charlie heima hjá þeim, að því er segir í frétt Reuters-fréttastofunnar. Takist þeim það ekki er líkleg niðurstaða að Charlie verði fluttur á líknardeild.
Tengdar fréttir Skoða ábendingar um meðferð fyrir dauðvona dreng Hópur lækna hefur sent sjúkrahúsinu sem annast Charlie Gard, tíu mánaða breskan dreng sem bíður dauðans af völdum sjaldgæfs sjúkdóms, ábendingar um mögulegan ávinning tilraunameðferðar. Sjúkrahúsið hefur óskað eftir að dómstóll taki mál hans fyrir aftur. 7. júlí 2017 19:41 Foreldrar Charlie Gard hætta baráttu sinni fyrir dómstólum Foreldrar Charlie Gard, bresks 11 mánaða drengs sem þjáist af afar sjaldgæfum og banvænum sjúkdómi, tilkynntu í dag að þau séu hætt baráttu sinni fyrir lífi drengsins fyrir dómstólum. 24. júlí 2017 14:24 Ekki hægt að flytja dauðvona dreng í Páfagarð Utanríkisráðherra Bretlands segir best að fela sérfræðingum og dómstólum að taka ákvarðanir um örlög dauðvona drengs. Sjúkrahús Páfagarðs hafði boðist til að taka við drengnum og halda meðferð áfram. 5. júlí 2017 18:02 Sjúkrahús Páfagarðs býðst til að taka við langveiku barni Mál Charlie Gard, langveiks drengs sem bíður dauðans, hefur vakið athygli um allan heim. Barnasjúkrahús í eigu Páfagarðs hefur nú boðist til að taka við drengnum til að foreldrarnir geti sjálfir ákveðið hvenær lífsbarátta hans endar. 4. júlí 2017 18:25 Trump og páfinn heita foreldrum barns sem á að leyfa að deyja stuðningi Foreldrar tíu mánaða gamals langveiks drengs sem læknar ætla að taka úr öndunarvél hafa fengið stuðning frá Páfagarði og Hvíta húsinu. 3. júlí 2017 19:27 Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira
Skoða ábendingar um meðferð fyrir dauðvona dreng Hópur lækna hefur sent sjúkrahúsinu sem annast Charlie Gard, tíu mánaða breskan dreng sem bíður dauðans af völdum sjaldgæfs sjúkdóms, ábendingar um mögulegan ávinning tilraunameðferðar. Sjúkrahúsið hefur óskað eftir að dómstóll taki mál hans fyrir aftur. 7. júlí 2017 19:41
Foreldrar Charlie Gard hætta baráttu sinni fyrir dómstólum Foreldrar Charlie Gard, bresks 11 mánaða drengs sem þjáist af afar sjaldgæfum og banvænum sjúkdómi, tilkynntu í dag að þau séu hætt baráttu sinni fyrir lífi drengsins fyrir dómstólum. 24. júlí 2017 14:24
Ekki hægt að flytja dauðvona dreng í Páfagarð Utanríkisráðherra Bretlands segir best að fela sérfræðingum og dómstólum að taka ákvarðanir um örlög dauðvona drengs. Sjúkrahús Páfagarðs hafði boðist til að taka við drengnum og halda meðferð áfram. 5. júlí 2017 18:02
Sjúkrahús Páfagarðs býðst til að taka við langveiku barni Mál Charlie Gard, langveiks drengs sem bíður dauðans, hefur vakið athygli um allan heim. Barnasjúkrahús í eigu Páfagarðs hefur nú boðist til að taka við drengnum til að foreldrarnir geti sjálfir ákveðið hvenær lífsbarátta hans endar. 4. júlí 2017 18:25
Trump og páfinn heita foreldrum barns sem á að leyfa að deyja stuðningi Foreldrar tíu mánaða gamals langveiks drengs sem læknar ætla að taka úr öndunarvél hafa fengið stuðning frá Páfagarði og Hvíta húsinu. 3. júlí 2017 19:27