Frakkar keyrðu yfir strákana hans Óla Stefáns Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júlí 2017 15:00 Arnar Freyr Arnarsson skoraði fjögur mörk á móti Frökkum. Vísir/EPA
Íslenska 21 árs landsliðið er þessa dagana í lokaundirbúningi sínum fyrir heimsmeistaramótið í Alsír sem hefst 18. júlí næstkomandi. Íslenska liðið hefur verið í Þýskalandi og Frakklandi og spilað æfingaleiki við heimamenn. Ísland vann þriggja marka sigur á Þýskalandi, 33-30, í fyrsta æfingaleiknum sínum en var svo heldur betur skotið niður á jörðina í gær. Íslensku strákarnir töpuðu þá illa fyrir Frökkum í vináttulandsleik í Omnisport höllinni í Abbeville í Frakklandi. Í lokin skildu sextán mörk. Framarinn Þorgeir Bjarki Davíðsson, Eyjamaðurinn Dagur Arnarsson og Arnar Freyr Arnarsson, leikmaður Kristianstad í Svíþjóð, voru markahæstir í íslenska liðinu með fjögur mörk hver. Íslenska liðið lenti snemma undir í leiknum og elti allan fyrri hálfleikinn, staðan í hálfleik 17-12 fyrir Frakkland. Í síðari hálfleik var eins og allt loft væri úr okkar mönnum, Frakkar keyrðu yfir strákana okkar og unnu stórsigur, 38-22. Ólafur Stefánsson og Sigursteinn Arndal, þjálfar íslenska liðsins, fá því verðugt verkefni að rífa strákana upp fyrir seinni vináttulandsleik liðanna sem fram fer í kvöld. Það væri ekki gott að fara inn á HM með tvö stórtöp á bakinu. Markaskorarar Íslands í leiknum: Þorgeir Bjarki Davíðsson 4, Dagur Arnarsson 4, Arnar Freyr Arnarsson 4, Ómar Ingi Magnússon 3, Óðinn Þór Ríkharðsson 2, Kristján Örn Kristjánsson 1, Hákon Daði Styrmisson 1, Aron Dagur Pálsson 1, Birkir Benediktsson 1. Einar Baldvin Baldvinsson varði 11 skot og Grétar Ari Guðjónsson varði 1.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira