Íslenska ríkið sýknað af kröfu Svavars Halldórssonar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. júlí 2017 10:52 Svavar Halldórsson fyrrverandi fréttamaður á RÚV.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur komist að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið braut ekki gegn tjáningarfrelsi Svavars Halldórssonar, þáverandi fréttamanns Ríkisútvarpsins, þegar hann var dæmdur í Hæstarétti í nóvember 2012 fyrir að greiða Jóni Ásgeiri Jóhannessyni 300 þúsund krónur í skaðabætur vegna fréttar um hann. Þá voru ummæli sem höfð voru um Jón Ásgeir í frétt Svavars dæmd dauð og ómerk í Hæstarétti, en fyrst var greint frá niðurstöðu Mannréttindadómstólsins á vef RÚV. Svavar krafðist ómerkingar á dómi Hæstaréttar fyrir Mannréttindadómstólnum sem féllst ekki á þá kröfu. Taldi dómstóllinn að dómur Hæstaréttar hefði ekki brotið gegn 10. grein Mannréttindasáttmála Evrópu sem kveður á um tjáningarfrelsi og þá taldi dómstóllinn heldur ekki að skaðabæturnar sem Svavari var gert að greiða hefðu „kælandi áhrif“ á frelsi fjölmiðla.Var talinn hafa borið Jóni Ásgeiri á brýn refsiverða háttsemi Málið sneri að frétt sem birtist í kvöldfréttum RÚV þann 6. desember 2010 og fjallaði um Fons, félag Pálma Haraldssonar, og þriggja milljarða króna lán félagsins til Pace Associates sem var skráð í Panama. Í fréttinni kom fram að Landsbankinn hefði stofnað Pace Associates þegar hann var kominn út fyrir heimildir til að lána beint til fasteignasjóðs á Indlandi. Baugur, Hannes Smárason og Kevin Stanford hafi verið hluthafar í sjóðnum og hafi féð á endanum runnið í vasa þeirra Pálma, Jóns Ásgeirs og Hannesar Smárasonar. Lán Fons var veitt Pace Associates í gegnum Landsbankann í Lúxemborg. Höfðaði Jón Ásgeir mál á hendur Svavari vegna eftirfarandi ummæla í fréttinni: „Fons er á hinn bóginn gjaldþrota og þrotabúið leitar fjárins. Það hafa yfirvöld hér á landi líka gert, eins og við höfum áður greint frá, og þau telja sig komin á slóð peninganna, enda hafa þau undir höndum gögn sem benda til þess að þeir Pálmi, Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes Smárason, hafi skipulagt Panama-fléttuna fyrirfram. Það er að koma peningunum út til Panama en síðan hafi féð ratað aftur eftir krókaleiðum í vasa þremenninganna.“ Í dómi Hæstaréttar sagði að ummælin yrðu ekki skilin á annan veg en að með þeim væri verið að bera Jón Ásgeir á brýn háttsemi sem væri refsiverð. Var Svavar ekki talinn hafa sýnt fram á að fullyrðingin ætti við rök að styðjast og þar af leiðandi voru ummælin dæmd dauð og ómerk.Dóm Mannréttindadómstóls Evrópu má nálgast hér.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira