Slökkviliðsmenn fengu yfir sig sjóðandi heita olíu við slökkvistarf á Egilsstöðum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. júlí 2017 12:20 Frá vettvangi í morgun.
Gallar slökkviliðsmanna eyðilögðust og þá brenndist einn slökkviliðsmaður á hendi þrátt fyrir að vera í hanska við slökkvistarf á Egilsstöðum í dag þar sem slökkviliðsmenn fengu yfir sig fljótandi og sjóðandi olíu. Eldur kom upp í loftháf yfir grilli í eldhúsi veitingastaðarins Salt Cafe & Bistro í morgun að Miðvangi 2. Eldurinn barst úr háfnum í loftræstikerfi hússins en þar eru mörg fyrirtæki með starfsemi og þurfti að rýma húsið vegna eldsins. „Þetta horfði nú ekki vel í upphafi. Þetta var eldur í loftræstiröri sem var dálítið lágt og erfitt að komast að því. Það var dálítil hætta að eldurinn væri kominn út fyrir rörið þannig að við þurftum að saga það í sundur á nokkrum stöðum og þannig tókst okkur að slökkva. En þegar það kemur eldur í svona rör þá bráðnar fita sem sest inn í þau og þarna verður þá fljótandi, sjóðandi olía og eldur. Út af því við þurftum svo að saga í sundur til að komast að eldum en við það kemur fljótandi, sjóðandi olía yfir okkur þannig að það eyðilögðust hérna gallar og einn slökkviliðsmaður fékk roða á hendi þótt hann væri með allar verjur sem lögboðnar eru,“ segir Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna á Austurlandi í samtali við Vísi. Alls tóku níu slökkviliðsmenn þátt í slökkvistarfinu sem fór að mestu fram í gangi eftir endilöngu rýminu þar sem veitingahúsið er. Rjúfa þurfti loft þar sem farið var að sviðna á stöðunum í kringum loftræstirörið og bráðna niður plastkaplar og rafmagnskaplar. Þá leit út fyrir að það myndi kvikna í á stöðum í kringum það en slökkviliðinu tókst að koma í veg fyrir það. Slökkvistarfi er lokið en lögreglan mun rannsaka eldsupptök. Þá er starfsmenn sem þurftu að rýma húsið komnir aftur inn og búið að setja rafmagn aftur á þann hluta hússins þar sem Salt Cafe & Bistro er ekki með starfsemi.
Tengdar fréttir Eldur á Egilsstöðum Eldur kom upp í veitingastaðnum Salt Cafe & Bistro á Egilsstöðum nú í morgun. 5. júlí 2017 11:08 Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira
Eldur á Egilsstöðum Eldur kom upp í veitingastaðnum Salt Cafe & Bistro á Egilsstöðum nú í morgun. 5. júlí 2017 11:08