Carlos Sainz, spænski ökumaður Toro Rosso liðsins í Formúlu 1 segir ólíklegt að hann verði hjá liðinu á næsta ári.
Sainz hafnaði tilboði frá Renault liðinu fyrir yfirstandandi tímabil. Hann valdi í staðinn að halda sig innan Red Bull fjölskyldunnar til að sanna að hann geti tekið að sér akstur fyrir lið í fremstu röð.
Engin staða virðist ætla að losna fyrir Sainz hjá systurliði Toro Rosso, Red Bull. Bæði Daniel Ricciardo og Max Verstappen ökumenn Red Bull eru samningsbundnir liðinu á næsta ári.
„Það er enn mikið eftir af tímabilinu og þessi orðrómur er alltaf á kreiki. Mitt helsta markmið er að vera með Red Bull liðinu á næsta ári og byrja að berjast um verðlaunasæti og vinna keppnir,“ sagði Sainz við blaðamenn Autosport í Austurríki í dag.
„Ég ætla að reyna að láta það gerast. Ef það gerist ekki þá er fjórða árið með Toro Rosso ólíklegt og ég mun ekki loka á nein tækifæri. Ég er reiðubúinn að taka næsta skref á mínum ferli,“ hélt Sainz áfram.
Sainz er heilum 25 stigum ofar í heimsmeistarakeppni ökumanna en liðsfélagi sinn, Daniil Kvyat. Sainz segist ætla að einbeita sér að því að standa sig á brautinni.
„Ég þarf að sinna vinnu minni sem er að aka bíl eins hratt og hann kemst. Mér líður vel í liðinu og ég hef trú á mér og bílnum, þetta er allt afar jákvætt eins og er,“ sagði Sainz.
Carlos Sainz líklegst á förum frá Toro Rosso

Tengdar fréttir

Jackie Stewart: Vettel var plataður til í að gera stór mistök
Jackie Stewart, þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1 telur að Lewis Hamilton hafi veitt Sebastian Vettel í gildru í Bakú síðustu helgi.

Robert Kubica keyrir fyrir Renault á ný
Pólski ökuþórinn Robert Kubica er kominn aftur undir stýri á Formúlu 1 kappakstursbíl eftir að hafa lent í árekstri 2011.

Vettel ekki refsað fyrir að aka utan í Hamilton
Ótrúleg uppákoma í kappakstrinum í Aserbaísjan mun ekki draga dilk á eftir sér.