FIA, alþjóða akstursíþróttasambandið birti fyrir skemmstu keppnisdagatalið fyrir 2018 tímabilið í Formúlu 1. Kafað er í ástæður á bakvið dagsetningar í dagatalinu.
Í fyrsta sinn í sögu Formúlu 1 verður svokallaður þríhöfði á dagskrá, þar sem þrjár keppnishelgar verða í röð.
Franski kappaksturinn er fyrsti af þríhöfðanum, næstur kemur austurríski kappaksturinn og þar á eftir sá breski á Silverstone brautinni.
Liðin munu eflaust kalla þetta erfitt í framkvæmd og ökumenn munu reyna á þolrif andlegs og líkamlegs úthalds en svona er staðan.
Frakkland er upprunaland Formúlu 1 og það má því segja að Formúla 1 snúi heim. Fyrsti Formúlu 1 kappaksturinn fór fram árið 1906. Paul Ricard - brautin hefur ekki sést á keppnisdagatalinu síðan 1990.
Til viðbótar við áður nefndan þríhöfða þá verða fimm keppnir á sex vikum fyrir sumarfríið sem verður í ágúst.
Dags. - Braut - Land
25. mars - Melbourne - Ástralía
8. apríl - Sjanghæ - Kína
15. apríl - Shakír - Bahrein
29. apríl - Bakú - Aserbadjían
13. maí - Barselóna - Spánn
27. maí - Mónakó - Mónakó
10. júní - Montreal - Kanada
24. júní - Le Castellet - Frakkland
1. júlí - Spielberg - Austurríki
8. júlí - Silverstone - Bretland
22. júlí - Hockenheim - Þýskaland
29. júlí - Búdapest - Ungverjaland
26. ágúst - Spa-Francorchamps - Belgía
2. september - Monza - Ítalía
16. september - Singapúr - Singapúr
30. september - Sotsjí - Rússland
7. október - Suzuka - Japan
21. október - Austin - Bandaríkin
28. október - Mexíkóborg - Mexíkó
11. nóvember - Saó Paolo - Brasilía
25. nóvember - Yas Marína - Abú Dabí
Formúla 1 snýr aftur til upprunalandsins 2018

Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Hamilton hafði margt að sanna í Kanada
Lewis Hamilton minnkaði forskot Sebastian Vettel í heimsmeistarakeppni ökumanna niður í 12 stig með því að koma fyrstur í mark í Formúlu 1 keppninni í Kanada um liðna helgi.

Renault: Stórar breytingar á vélinni bíða til 2018
Renault mun ekki kynna til sögunnar stórar uppfærslur á Formúlu 1 vél sinni fyrr en á næsta ári samkvæmt Cyril Abiteboul, yfirmanni kappakstursmála hjá Renault.