Fyrsta lota
Dekkin voru tiltölulega lengi að hitna hjá ökumönnum sem glímdu við að finna grip. Hamilton var fljótastur í lotunni og Verstappen annar fljótastur.
Þeir sem féllu úr leik voru; McLaren ökumennirnir, Marcus Ericsson á Sauber og Romain Grosjean á Haas. Jolyon Palmer á Renault gat ekki tekið þátt í tímatökunni eftir að eldur kom upp í bíl hans á æfingu. Það er vonando að hann geti verið með á morgun.
Önnur lota
Veggirnir ógnuðu ökumönnum talsvert í lotunni. Verstappen smellti léttum kossi á vegg en komst upp með það. Felipe Massa þurfti að passa sig sérstaklega vel, hann var afar laus á brautinni.
Hamilton var sjóðandi heitur í lotunni og þegar útlit var fyrir spennandi tímatöku fann Hamilton 0,7 sekúndur sem virtist rothögg fyrir alla aðra.
Þeir sem féllu út í annarri lotu voru; Toro Rosso ökumennirnir, Kevin Magnussen á Haas, Nico Hulkenberg á Renault og Pascal Wehrlein á Sauber.

Bottas komst upp með að strjúka öryggisvegg í sinni fyrstu tilraun en setja tíma sem enginn gat skákað í bili.
Daniel Ricciardo smellti Red Bull bílnum út í varnarvegg, hann nam staðar á óheppilegum stað. Tímatakan var stöðvuð með 3:33 eftir, Hamilton tókst því ekki að setja tíma annan hringinn í röð. Hringurinn sem Hamilton þurfti að hætta við lofaði góðu, hann var 0,2 sekúndum fljótari en Bottas á fyrsta tímatökusvæðinu.
Ökumenn gátu aðeins notað úthringinn til að ná hita í dekkin og það þýddi að menn voru ekki alveg með sama grip og þeir hefðu viljað.
Hamilton galdraði fram magnaðan hring og var tæplega hálfri sekúndu fljótari en liðsfélagi sinn, Bottas sem var eflaust farinn að halda að hann hefði þetta í hendi sér.