Með smáforrit að vopni í baráttunni gegn mansali Kristín Ólafsdóttir skrifar 29. júní 2017 15:00 Snorri Birgisson, sérfræðingur í rannsóknum mansalsmála, segir vændi á Íslandi hafa færst af hótelum og yfir í leiguíbúðir. Smáforritið TraffickCam hafi því ekki enn komið að notum. Vísir/Vilhelm
Sérstakt smáforrit, sem notað hefur verið í baráttu gegn mansali og vændi, hefur vakið mikla athygli um allan heim undanfarna mánuði. Stöðuuppfærsla íslenskrar stúlku um forritið kom því á kortið á meðal íslenskra notenda í gær. Sérfræðingur í rannsóknum mansalsmála fagnar tilvist smáforritsins en segir það ekki hafa mikið notagildi í mansalsmálum á Íslandi.Sara Mansour vakti athygli á TraffickCam-forritinu í gær. Hún brautskráðist frá Menntaskólanum í Hamrahlíð í ár.Sara MansourSara Mansour, nýstúdent úr Menntaskólanum við Hamrahlíð, vakti athygli á smáforritinu TraffickCam á Facebook-síðu sinni í gær. Forritið, sem hægt er að hlaða ókeypis niður í farsíma, gerir notendum kleift að setja myndir af hótelherbergjum inn í gagnagrunn. Lögregla og saksóknarar geta svo nýtt sér myndirnar við að bera kennsl á fórnarlömb vændis og mansals. „Auglýsingar á þess háttar starfsemi eða barnaklámi eru endranær teknar á hótelum svo myndirnar sem við gefum lögreglunni gegnum TraffickCam getur hjálpað henni að finna samsvörun,“ segir í stöðuuppfærslu Söru í gær.Hefur hjálpað mjög í baráttunni gegn barnaklámi og vændi TraffickCam var hleypt af stokkunum árið 2015. Að framleiðslu forritsins standa samtökin Exchange Initiative sem helga sig baráttunni gegn kynlífsþrælkun barna. Sara er stödd í Barcelona um þessar mundir en í samtali við Vísi segist hún hafa notast við TraffickCam í um eitt ár. Hún sendi fyrst inn myndir í gagnagrunninn þegar hún ferðaðist til Frakklands á síðasta ári. „Þetta hefur hjálpað mjög í baráttunni gegn barnaklámi og vændi í útlöndum og það væri frábært ef það væri hægt að nota þetta hér á Íslandi,“ segir Sara. TraffickCam greinir myndir, sem sendar eru inn í gagnagrunninn, í minni hluta. Þannig geta lögreglumenn notast við einkenni á myndunum á borð við mynstur á gólfteppum, málverk og landslag út um glugga til að greina staðsetningar myndanna.Notendur TraffickCam geta hlaðið myndum af hótelherbergjum inn í gagnagrunn sem lögregla getur notað við rannsóknir á vændismálum.SkjáskotForritið fagnaðarefni en hefur ekki verið notað á ÍslandiÍ gær bárust fréttir af því að ríkisstjórn Íslands mæti ekki þeim lágmarksskilyrðum sem þarf til að berjast gegn mansali hér á landi. Engir hafa verið sakfelldir fyrir mansal eða ákærðir á síðustu sex árum, samkvæmt árlegri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mansal á heimsvísu. Snorri Birgisson, rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og sérfræðingur í rannsóknum mansalsmála, segir appið fagnaðarefni en það hafi ekki verið notað á Íslandi. „Við vitum af þessu appi og höfum skoðað þetta en við getum líka sagt það að vændi á Íslandi hefur færst út af hótelunum, þannig að þetta er kannski ekki alveg að nýtast, þannig,“ segir Snorri. „Við höfum skoðað þetta forrit en þau hótel sem hafa verið nýtt hér undir vændi, við höfum yfirleitt vitað hvar þau eru.“ Hann segir appið þó kærkomna viðbót við baráttuna gegn mansali og vændi, sérstaklega í útlöndum þar sem vændi fer enn mikið fram á hótelum og gistiheimilum.Frekari upplýsingar um TraffickCam er hægt að nálgast á heimasíðu forritsins. Þá má hlaða TraffickCam niður hér en það hefur bæði verið hannað fyrir iOS- og Android-stýrikerfi.
Tengdar fréttir Flýta þurfi gerð aðgerðaráætlunar gegn mansali Þingmaður VG kallar á eftir því að stjórnvöld flýti gerð aðgerðaráætlunar í mansalsmálum. 29. júní 2017 13:30 Gefa vændiskonum einkunnir og umsagnir á grófri spjallsíðu Spjallsíða sem notuð hefur verið til dreifingar á stafrænu kynferðisofbeldi hefur undanfarinn mánuð verið brúkuð til að gefa einkunnir, mæla með eða vara við gleðikonum. 23. júní 2017 11:45 Mæta ekki lágmarksskilyrðum í baráttu gegn mansali Engir hafa verið sakfelldir fyrir mansal, né ákærðir á síðustu sex árum. 28. júní 2017 10:25 Hvorki saksótt né dæmt í mansalsmálum Sprenging hefur orðið í vændi hér á landi á síðustu mánuðum að sögn lögreglu og Ísland er annars flokks þegar kemur að baráttunni gegn mansali í heiminum samkvæmt nýrri skýrslu. Sextán mansalsmál voru rannsökuð hér á landi í fyrra en ekki hefur verið saksótt eða dæmt í slíkum málum síðastliðin sex ár. 28. júní 2017 19:15 Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira
Flýta þurfi gerð aðgerðaráætlunar gegn mansali Þingmaður VG kallar á eftir því að stjórnvöld flýti gerð aðgerðaráætlunar í mansalsmálum. 29. júní 2017 13:30
Gefa vændiskonum einkunnir og umsagnir á grófri spjallsíðu Spjallsíða sem notuð hefur verið til dreifingar á stafrænu kynferðisofbeldi hefur undanfarinn mánuð verið brúkuð til að gefa einkunnir, mæla með eða vara við gleðikonum. 23. júní 2017 11:45
Mæta ekki lágmarksskilyrðum í baráttu gegn mansali Engir hafa verið sakfelldir fyrir mansal, né ákærðir á síðustu sex árum. 28. júní 2017 10:25
Hvorki saksótt né dæmt í mansalsmálum Sprenging hefur orðið í vændi hér á landi á síðustu mánuðum að sögn lögreglu og Ísland er annars flokks þegar kemur að baráttunni gegn mansali í heiminum samkvæmt nýrri skýrslu. Sextán mansalsmál voru rannsökuð hér á landi í fyrra en ekki hefur verið saksótt eða dæmt í slíkum málum síðastliðin sex ár. 28. júní 2017 19:15