Starfsfólk deildarinnar vinnur eftir nýju verklagi að breskri fyrirmynd. Deildin ber heitið bráðalyflækningadeild og sinnir stærsta hluta þeirra sjúklinga sem leggjast inn á spítalann eða öllum sjúklingum sem meðhöndlaðir eru með lyfjum og tilheyra ekki skurðssviði eða kvensjúkdómalækningum.
„Þeir koma frá bráðamóttöku til okkar og einnig frá göngudeildum lyflækningasviðs og eru metnir af þverfaglegu teymi og það er hafin meðferð strax,“ segir Sigríður og nefnir að stærsti hlut þessara sjúklinga séu aldraðir.
Flýta ferlinu
Markmiðið er að flýta greiningarferlinu og auka öryggi sjúklinga. Meðferð verður því hafin sem allra fyrst. Sjúklingar munu aðeins dvelja á deildinni í 48 klukkustundir og eftir það verða þeir annað hvort útskrifaðir eða sendir á aðra deild, að þeim tíma loknum.
Heilbrigðiskerfið hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og hefur plássleysi meðal annars verið eitt af því sem bæði starfsfólk og sjúklingar hafa gagnrýnt.
„Við höfum haft svo marga sem bíða innlagnar; fá ekki pláss á legudeildum sem tilheyra lyflækningasviði og bráðamóttökunni. Svo þetta hefur verið brýn þörf að opna svona deild.“
Miklar breytingar
Samkvæmt Sigríði hefur opnun þessarar nýju deildar strax breytt miklu. Gegnumflæði hafi verið mikið og létt hafi verið á álagi bráðamóttökunnar. Deildin breyti einnig miklu fyrir unga lyflækna í sérnámi þar sem þeir komist fyrr í návígi við sjúklinga.
Sjá einnig: Lækna- Tómas gagnrýnir stjórnvöld„
Stefnt er að því að ráða fleira fólk inn á deildina og hefur það gengið ágætlega samkvæmt Sigríði. Hún segir jafnframt að þau voni að deildin eigi eftir að hafa jákvæð áhrif á starfsemina og nefnir að aðrar breytingar séu í farvatninu til að auka skilvirkni.
Myndband frá Landspítalanum vegna nýju deildarinnar má sjá hér að neðan: