Enginn hefur gegnt embættinu síðasta mánuðinn, eða frá því að Trump rak James Comey úr stóli forstjóra.
Wray gegndi embætti aðstoðardómsmálaráðherra á árunum 2003 til 2005 í valdatíð George W. Bush Bandaríkjaforseta. Hann hefur að undanförnu starfað á lögmannsstofunni King & Spalding í höfuðborginni Washington DC.
Trump lýsti Wray í tísti sem manni með óaðfinnanleg meðmæli.
I will be nominating Christopher A. Wray, a man of impeccable credentials, to be the new Director of the FBI. Details to follow.
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) June 7, 2017
Trump sagði ákvörðunina um að láta reka Trump hafi verið hans, en hann hafði þá nýlega fengið bréf frá dómsmálaráðherranum Jeff Sessions sem að ráðlagði Trump að láta Comey fara. Sagði Sessions að nauðsynlegt væri að finna mann til að stýra FBI sem myndi auka tiltrú á stofnuninni.