Flynn hyggst koma gögnum til þingnefndar Atli Ísleifsson skrifar 31. maí 2017 09:01 Michael Flynn tók við starfi þjóðaröryggisráðgjafa í janúar en lét af störfum í tæpum mánuði síðar. Vísir/AFP
Michael Flynn, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Donald Trump Bandaríkjaforseta, hyggst koma hluta af umbeðnum gögnum til nefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar afskipti Rússa af bandarísku forsetakosningunum sem fram fóru á síðasta ári.AP greindi frá þessu í gærkvöldi, sama dag og lögmaður Trump, Michael Cohen, neitaði þingnefnd fulltrúadeildarinnar um upplýsingar. Greint var frá því í síðustu viku að Flynn hafi neitað að afhenda þingnefnd gögn í tengslum við rannsóknina. Sagðist hann ætla að nýta sér stjórnarskrárvarin réttindi sín sem tryggja að ekki sé hægt að krefja vitni um að svara ásökunum sem gætu komið sök á hann sjálfan. Flynn tók við starfi þjóðaröryggisráðgjafa í janúar en lét af störfum í tæpum mánuði síðar eftir að upp komst að hann sagði ósatt um samskipti sín við rússneskan sendiherra í aðdraganda valdaskiptanna. Leyniþjónustunefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings rannsakar nú tengsl starfsmanna kosningabaráttu Trump við Rússland en Flynn var einnig ráðgjafi Trump í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum síðastliðið haust.
Donald Trump Mest lesið Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Innlent Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Erlent Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Milljónir ekki komið til Íslands þótt þær gætu það Innlent Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Innlent Fleiri fréttir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Næstu mánuðir skipta sköpum Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Þrýst á Scholz að víkja fyrir vinsælasta stjórnmálamanni landsins Sprengdu upp leynilega kjarnorkuvopnarannsóknarstöð í Íran Fangelsaðar fyrir að gagnrýna forsetann og klæðaburð Musk sagður hafa átt fund með sendiherra Íran Segja loftslagsráðstefnurnar ekki lengur þjóna tilgangi sínum Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Trump setur Kennedy í heilbrigðismálin Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu The Onion kaupir InfoWars Vill sýna þinginu hver ræður Sprengdi sig upp fyrir utan hæstarétt Brasilíu Um 800 milljónir manna í heiminum með sykursýki Vilja svipta Le Pen frelsinu og kjörgengi í fimm ár Tilnefning Gaetz sem dómsmálaráðherra vekur furðu og reiði Repúblikanar með Hvíta húsið og allt þingið undir sinni stjórn „Valdaskiptin munu ganga svo smurt fyrir sig“ Melania Trump afþakkaði boð Jill Biden Stefnir í hreinsanir innan Pentagon Ætlar að hætta áður en Trump rekur hann Mikil fjölgun í aftökum Rússa á stríðsföngum Hvítrússnesk andófskona skýtur upp kollinum eftir langa þögn Vill verða bæjarstjóri í Þórshöfn eftir kosningasigur Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Sjá meira