Vettel stal fyrsta sætinu af liðsfélaga sínum, Raikkonen í gegnum þjónustuhlé. Ricciardo ók snilldar vel á meðan hann hafði auða braut þegar Valtteri Bottas og Max Verstappen tóku þjónustuhlé. Ricciardo tók þriðja sætið af Bottas.
Vettel leiðir þá heimsmeistarakeppni ökumanna með 25 stigum sem er einmitt sá fjöldi sem fæst fyrir að vinna eina keppni.
Raikkonen hélt forystunni í gegnum ræsinguna og fátt tíðindavert gerðist í ræsingunni. Að því undanskyldu að Kevin Magnussen á Haas vann sig upp um tö sæti í ræsingunni og var orðinn níundi.
Jenson Button ræsti af þjónustusvæðinu vegna vélaskipta. Fernando Alonso hafði samband við Button rétt fyrir keppnina í gegnum talstöðvakerfið. Button sagði í léttum tón að hann myndi pissa í sæti Alonso. Alonso keppir í Indy 500 kappakstrinum sem fram fer seinna í dag.
Nico Hulkenberg á Renault lenti í því að gírkassinn bilaði og hann þurfti að hætta keppni á 17. hring.
Bilið frá Raikkonen og aftur til Vettel var um ein og hálf sekúnda þegar 19 hringir voru búnir. Hamilton var kominn upp í 10. sæti vegna þess að Hulkenberg datt út og Sergio Perez tók þjónustuhlé.
Þegar fremstu menn fóru að hringa hægari ökumenn í kringum 27. hring þá þéttist hópurinn örlítið en enginn gat raunar ógnað ökumanninum fyrir framan sig.
Max Verstappen tók þjónustuhlé á 32. hring og Valtteri Bottas svaraði fyrir sig í baráttunni við Verstappen og tók þjónustuhlé á næsta hring og hæelt þriðja sætinu.

Ricciardo kom inn á hring 38 og kom út á brautina í þriðja sæti á eftir Ferrari mönnum. Verstappen var allt annað en sáttur eftir að hafa misst Ricciardo fram úr sér í gegnum þjónustuhlé.
Hamilton kom inn í sjötta sæti á hring 46. og tók þjónustuhlé. Hann kom svo út í sjöunda sæti. Hamilton gekk vel að lágmarka skaðan sem var unninn í tímatökunni í gær. Hann ræsti 13. af stað í kappaksturinn.
Öryggisbíllinn var kallaður út þegar Pascal Wehrlein á Sauber bílum valt í brautinni og endaði á hlið upp við vegrið á hring 60. Byltan kom í kjölfar áreksturs við Jenson Button sem féll úr leik í kjölfarið með brotna framfjöðrun. Marcus Ericsson féll úr leik á meðan öryggisbíllinn var úti vegna þess að hann missti bremsuhita og hafnaði á öryggisvegg. Báðir Sauber ökumennirnir duttu út með nokkurra hringja millibili.
Stoffel Vandoorne féll úr leik í endurræsingunni á 67. hring þegar hann skautaði á sama varnarvegg í fyrstu beygju og grandaði bíl Ericsson. Daniil Kvyat féll úr leik á hring 72 eftir að Sergio Perez keyrði inn í hliðina á honum.