Fyrirliði íslenska landsliðsins er á heimleið | Á sitt óskalið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2017 08:30 Karen Knútsdóttir. vísir/ernir
Karen Knútsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í handbolta og atvinnumaður í sex ár, ætlar að spila heima á Íslandi á næsta tímabili. Karen staðfesti þetta í viðtali við Morgunblaðið sem birtist í dag. Karen hefur ekki enn samið við lið hér heima en allt bendir til þess að hún fari aftur í Fram. „Fram er mitt óskalið,“ sagði Karen í samtali við Ívar Benediktsson hjá Morgunblaðinu. Karen Knútsdóttir hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu í langan tíma en hún hefur skorað 310 mörk í 86 landsleikjum. Hún er fjórða markahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi. Karen náði aldrei að verða Íslandsmeistari áður en hún fór í atvinnumennsku. Hún fékk silfur með Framliðinu fjórum sinnum eða árið 2008, 2009, 2010 og 2011. Karen spilaði fyrst tvö ár í Þýskalandi, þá eitt ár í Danmörku og hefur undanfarin þrjú tímabil spilað með franska liðinu Nice. Hún hefur þó ekkert getað spilað frá því í febrúar vegna nárameiðsla. Framliðið er byrjað að endurheimta sínar stelpur úr atvinnumennsku því áður hefur landsliðshornamaðurinn Þórey Rósa Stefánsdóttir ákveðið að snúa heim í Safamýri en hún hefur spilað erlendis frá því að hún yfirgaf Fram árið 2009. Hún á því eftir að verða Íslandsmeistari með Fram alveg eins og Karen. Fram er búið að taka eitt skref í átt að Íslandsmeistaratitlinum í ár með því að komast í 1-0 í úrslitaeinvíginu á móti Stjörnunni en liðin mætast aftur í Safamýri í kvöld. Fái liðið síðan Karen og Þórey báðar fyrir næsta tímabil má búast við miklu af Framliðinu á næsta tímabili.
Íslenski handboltinn Handbolti Olís-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira