Foreldri fái rétt á við ríkisborgara Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 11. maí 2017 07:00 Sé þetta barn með ríkisborgararétt í Evrópusambandsríki, en faðirinn ekki, á hann rétt á barnabótum í viðkomandi ríki. Nordicphotos/Getty
Foreldri barna með ríkisborgararétt Evrópusambandsríkja eiga að njóta sömu réttinda og ríkisborgarar ríkja innan Evrópusambandsins. Þetta staðfesti dómur Evrópudómstólsins í gær í máli venesúelskrar konu sem á barn með hollenskan ríkisborgararétt. Konan kom upprunalega til Hollands sem ferðamaður en eignaðist barn með Hollendingi árið 2009. Þau slitu samvistum árið 2011 og sá konan ein fyrir barninu. Var henni neitað um atvinnuleysis- og barnabætur á grundvelli þess að hún væri ekki ríkisborgari. Komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að aðildarríki Evrópusambandsins mættu ekki taka ákvarðanir sem brytu á réttindum fjölskyldu ríkisborgara Evrópusambandsins sem í þessu tilfelli er hið hollenska barn. Rök dómstólsins fyrir dómnum voru meðal annars þau að öll ógn við réttindi móðurinnar kæmu samtímis í veg fyrir að barnið nyti sinna réttinda sem ríkisborgari. BBC greinir frá því að dómurinn sé sérstaklega merkilegur sökum væntanlegs brotthvarfs Bretlands úr Evrópusambandinu. Fjöldi Breta búi í öðrum aðildarríkjum sambandsins og eigi börn með ríkisborgurum viðkomandi landa. Afstaða Evrópusambandsins í væntanlegum samningaviðræðum við Breta er sú að ákvörðun um stöðu breskra ríkisborgara í löndum Evrópusambandsins verði að vera forgangsmál í samningaviðræðunum. Hið sama gildi um ríkisborgara Evrópusambandsríkja sem búsettir séu á Bretlandi.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira