Krónan ekki verið sterkari síðan í júlí 2008 Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. maí 2017 10:53 Krónan hefur styrkst nokkuð rösklega í þessari viku. vísir/valli
Íslenska gengisvísitalan fór niður fyrir 153 stig í morgun og hefur ekki farið lægra síðan í júlí 2008. Þetta þýðir að íslenska krónan hefur ekki verið sterkari síðan þá en gengisvísitala mælir breytingar á gengi krónunnar að teknu tilliti til vægis einstakra gjaldmiðla í inn- og útflutningi landsins. Krónan hefur því ekki veikst eins og einhverjir vonuðust eflaust til að myndi gerast í kjölfar þess að fjármagnshöftum var að mestu aflétt þann 13. mars síðastliðinn. Krónan veiktist vissulega nokkuð á fyrstu vikunum eftir haftarýmkunina en frá því í byrjun apríl má segja að hún hafi styrkst jafnt og þétt og nokkuð rösklega í þessari viku. Er þetta í takt við það sem sérfræðingar töldu að myndi gerast en í fréttum Stöðvar 2 þann 14. mars kom fram að þeir töldu frekar að krónan myndi styrkjast á næstu mánuðum og þá meðal annars vegna mikillar fjölgunar erlendra ferðamanna hér á landi. Ekkert lát er á þeirri fjölgun og sést best á því að í ár er því spáð að hingað komi allt að 2,3 milljónir ferðamanna í ár sem yrði metfjöldi.
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Sjá meira