Lítið nýtt í gögnunum frá Ólafi Snærós Sindradóttir skrifar 17. maí 2017 11:38 Ólafur Ólafsson mætir á fund nefndarinnar korter yfir þrjú síðdegis. vísir/vilhelm
Lítið sem ekkert nýtt er í þeim gögnum sem Ólafur Ólafsson fjárfestir skilaði til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í gær. Að óbreyttu gengur Ólafur á fund nefndarinnar korter yfir þrjú síðdegis en fundurinn verður opinn fjölmiðlum. Gögnin frá Ólafi eru umfangsmikil en heimildir Vísis herma að megnið af þeim séu sömu gögn og skilað var til Ríkisendurskoðunar þegar ummæli Vilhjálms Bjarnasonar í Silfri Egils árið 2006 voru tekin til skoðunar hjá stofnuninni. Í kjölfar ummæla Vilhjálms voru Guðmundur Hjaltason og Kristinn Hallgrímsson, framkvæmdastjóri og lögfræðingur Eglu, félags sem stofnað var til að halda um stóran hlut í Búnaðarbankanum, krafðir um gögn í tengslum við kaupin á Búnaðarbanka. Eftir því sem Vísir kemst næst eru það þau gögn sem Ólafur lagði meira og minna fram við nefndina í gærkvöldi. Önnur gögn eru meðal annars gögn sem Framkvæmdanefnd um einkavæðingu hafði í tengslum við söluna á Búnaðarbankanum á sínum tíma. Nefndarmenn höfðu tæpan sólarhring til að kynna sér gögnin en ljóst er að tvær grímur runnu á þá þar sem nefndarmenn stóðu í þeirri trú að Ólafur hyggðist leggja ný gögn fyrir nefndina sem gætu varpað ljósi á söluna á sínum tíma. Eins og fram hefur komið ríkir mikill trúnaður um þau gögn sem til nefndarinnar bárust síðdegis í gær. Nefndarmenn stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar tóku sameiginlega ákvörðun um að tjá sig ekki um innihald gagnanna við fjölmiðla fyrr en eftir að fundurinn með Ólafi væri yfirstaðinn. Fréttastofa 365 mun í öllum miðlum greina ítarlega frá fundi Ólafs með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd síðar í dag.
Salan á Búnaðarbankanum Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira