Gæti orðið geggjað sumar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. apríl 2017 06:30 Ásgerður Stefanía Baldursdóttir fagnar Íslandsmeistaratitlinum með félögum sínum í Stjörnunni síðasta haust. Hún verður fjarri góðu gamni í sumar þar sem að hún er ólétt. vísir/eyþór „
Tímabilið í fyrra var frábært og það gæti orðið enn skemmtilegra í ár,“ segir Þorkell Máni Pétursson um Pepsi-deild kvenna en nýtt tímabil hefst í dag með fjórum leikjum. Þorkell Máni er sérfræðingur í Pepsi-mörkum kvenna á Stöð 2 Sport en í honum eru allir leikir hverrar umferðar gerðir upp að henni lokinni. Fyrsti þáttur sumarsins verður sýndur klukkan 21.30 annað kvöld, í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Valskonum var spáð titlinum í árlegri spá forráðamanna, þjálfara og fyrirliða liðanna í deildinni. Það mátti reyndar litlu muna á efstu þremur liðunum en Breiðablik og Stjarnan komu þar skammt á eftir.Enginn að tala um Blikana Þorkell Máni gerir ráð fyrir því að þessi þrjú lið verði í toppbaráttunni í sumar. „Svo veit maður aldrei hvað gerist ef Þór/KA og ÍBV tekst að taka eitt aukaskref og blanda sér í þessa baráttu. Það er ekki útilokað,“ segir Máni. Engu að síður hefur Valur orðið fyrir miklum skakkaföllum í vetur en þrír öflugir leikmenn urðu fyrir því óláni að slíta krossband – Elísa Viðarsdóttir, Dóra María Lárusdóttir og Mist Edvardsdóttir. „Valur má ekki við því að lenda í frekari áföllum, svo mikið er víst.“ Hann segir að Breiðablik gæti grætt á því að Val hafi verið spáð titlinum og að Stjarnan eigi titil að verja. „Ég verð að vera heiðarlegur því mér virðist sem Blikarnir séu með sitt á hreinu. Það er heldur enginn að tala um Blikana og þeir gætu nýtt sér það.“Leiðtogans saknað Stjarnan getur að mati Mána gert alvöru tilkall til þess að verja titilinn sinn. Markahrókurinn Harpa Þorsteinsdóttir missti af síðustu leikjum síðasta tímabils þar sem hún var ólétt. Hún stefnir á að snúa aftur á völlinn síðar í sumar, sem yrði mikil búbót fyrir Stjörnuna. Hins vegar verður Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar til margra ára, ekki með þar sem hún ber barn undir belti. Þorkell Máni segir að Stjarnan gæti saknað hennar mjög. „Það vantar þennan leiðtoga á miðjunni sem hún hefur verið fyrir Stjörnuna. Hún á eftir að standa á hliðarlínunni og vera eins og einn úr þjálfarateyminu – ég efast ekki um það – en inni á vellinum gæti liðið saknað þess fordæmis sem hún hefur gefið.“ Máni bendir þó á að Stjarnan sé með afar sterkan leikmannahóp og að koma Guðmundu Brynju Óladóttur frá Selfossi gæti haft mikið að segja.KR-ingar klókir Hann á von á því að deildin verði tvískipt, rétt eins og í fyrra. Þau lið sem verði í neðri hlutanum séu ekki nógu öflug til að eiga möguleika á að blanda sér í baráttu liðanna í efri hlutanum. Hann segir þó að lið eins og KR geti staðið í hverjum sem er á góðum degi. „KR-ingar, undir stjórn Eddu Garðarsdóttur, sýndu að þeir eru klókir og útsjónarsamir. KR er með betra lið nú en í fyrra og nýju leikmennirnir sem komu inn gætu hjálpað þeim í jöfnum leikjum. KR-ingar létu oft vel finna fyrir sér gegn betri liðunum í fyrra,“ segir Máni. Hann reiknar með því að Haukar og Fylkir verði í basli í sumar og að Grindavík sé að miklu leyti óskrifað blað.Mæta eða þegja Máni segir að sumarið sé mikilvægt fyrir íslenska kvennaknattspyrnu, ekki síst þar sem landslið Íslands keppir á EM í Hollandi sem hefst um miðjan júlí. „Við eigum mun sterkari deild hér heima en margir gera sér grein fyrir,“ segir hann og bendir á að Hallbera Guðný Gísladóttir, sem fór frá Breiðabliki til Djurgården í Svíþjóð, hafi hoppað úr Pepsi-deildinni beint í byrjunarliðið í einni sterkustu deild heims. „Það segir sitt um gæði íslensku deildarinnar sem eru mjög mikil. Deildin á skilið að það sé betur mætt á leikina en verið hefur. Þetta gæti nefnilega orðið geggjað sumar fyrir íslenskan kvennafótbolta,“ segir hann. „En hver og einn verður að finna það hjá sjálfum sér. Það þýðir ekki að sitja heima hjá sér og gagnrýna allt og alla á samfélagsmiðlum. Liðin, umgjörðin um leikina og umfjöllunin í fjölmiðlum verður betri ef þú mætir á völinn. Ef þú mætir á völlinn þá máttu hafa skoðun á þessum málum, annars skaltu bara þegja.“
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Hann var 94 kg og djammaði á hverju kvöldi“ Fótbolti Sniffaði kókaín af gullmedalíunni á ÓL 2012 Sport „Leiðinlegt fyrir knattspyrnuáhugamenn“ Fótbolti Unnu og færðust nær HM en púaðir af velli og þjálfarinn aldrei verið jafn ósáttur Fótbolti Þessa vantar hjá Frökkum í kvöld Fótbolti Alexander vann tvo leggi gegn Littler Sport Alexander mætir Luke Littler á HM ungmenna Sport Milos orðaður við starf landsliðsþjálfara Serbíu Fótbolti Missir af landsleik eftir árekstur við stöngina Fótbolti Nagelsmann ætlaði ekki að sýna Norður-Írum vanvirðingu Fótbolti Fleiri fréttir Mollee og Kayla héldu örlitlu lífi í Evrópudraumum Þróttara Uppgjörið FH - Víkingur 3-2 | FH komið með níu tær inn í Evrópukeppni á næsta tímabili Uppgjörið: Valur-Breiðablik 1-1 | Valskonur tóku stig af meisturunum Hallgrímur framlengir við KA Fram gæti orðið stórveldi í íslenskri kvennaknattspyrnu innan örfárra ára Uppgjörið: Þór/KA - Fram 1-1 | Ósáttir Akureyringar enduðu ofar Arnari gekk illa að ná í þunna Víkinga Dæmdu Valsmann í leikbann en drógu það síðan til baka Utan vallar: Var Helgi Guðjóns að eiga Steina Gísla sumar? Björgvin Brimi í Víking Spilaði nærbuxnalaus og fékk UFC-spólur bak við borðið Króati tekur við kvennaliði Keflavíkur Gætu kvatt Bestu deildina án þjálfarans og lykilmanna Sölvi hæstánægður með Gylfa og vill sjá hann í landsliðinu Þorlákur verður áfram með Eyjamenn Hefur verið í liðinu eftir að ný leikstaða uppgötvaðist í Sambandsdeildinni Er eitthvað óeðlilegt að búið sé að gagnrýna þetta Valslið? „Skil ekki hvernig má kýla einhvern í andlitið?“ Hafa fengið áttatíu prósent stiga í boði með Gunnar í byrjunarliðinu Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-3 | Stjarnan lyftir sér upp í fjórða „Þetta er enginn flugeldasýningar Íslandsmeistaratitill“ Ekki gerst á Skaganum síðan Garðar átti markamánuð lífs síns Bjarni Guðjóns tók einn KR-ing sérstaklega fyrir Svona tryggðu Víkingar titilinn og öll hin mörkin úr Bestu í gær Gleðin í klefanum hjá nýju Íslandsmeisturunum „Þá fann ég á liðinu að það yrði ekki snúið við“ Sjáðu fögnuð Víkinga þegar Íslandsmeistaratitillinn var tryggður Gylfi Sigurðsson: Mikill léttir að tryggja fyrsta titilinn „Maður er orðinn Íslandsmeistari í sínu fyrsta giggi“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-1 | Evrópuvonir Blika lifa Sjá meira