Brjálaðir yfir því að Macron sniðgangi RT og Sputnik

Blaðamenn fjölmiðlanna hafa ekki fengið aðgang að framboði Macron á síðustu dögum.
Talsmaður Macron hefur staðfest að fjölmiðlunum verði ekki veittur aðgangur að framboðinu. Hann sagði þá dreifa áróðri Rússa og fölskum fréttum.
Zakharova segir ráðuneytið líta á það sem „vísvitandi mismunun gegn rússneskum fjölmiðlum af forsetaframbjóðanda ríkis, sem hefur um langt skeið varið málfrelsi.“ Þetta segir hún samkvæmt Tass fréttaveitunni sem einnig er í eigu rússneska ríkisins.
Framboð Macron hefur að undanförnu orðið fyrir tölvuárásum sem sérfræðingar tengja við sömu aðila og brutust inn í kerfi Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Þeir hakkarar eru sagðir vera á vegum rússneska ríkisins sem á þessa sömu fjölmiðla og Macron er að sniðganga.
Reyndu að gabba starfsmenn flokksins
Netöryggisfyrirtækið segir hakkarahópinn Pawn Storm, sem einnig hefur gengið undir nafninu Fancy Bear, hafa sent starfsmönnum Macron tölvupósta sem gengu út á að plata fólkið til að gefa upp lykilorð sín. Til þess skráðu þeir lén sem líktust verulega þeim lénum sem En Marche, stjórnmálaflokkur Macron, notast við, samkvæmt New York Times.
Þau lén voru svo notuð til þess að senda umrædda tölvupósta. Þegar starfsmenn flokksins tengdust þeim vefsíðum litu þær nákvæmlega út eins og hinar raunverulegu síður flokksins.
Pawn Storm er einnig sagður hafa gert árásir á meðlimi stofnunar sem tengist stjórnmólaflokki Angelu Merkel, kanslara Þýskalands.
Leyniþjónustur Bandaríkjanna og evrópskar leyniþjónustur hafa tengt þennan hóp við Rússland og þá sérstaklega við leyniþjónstu rússneska hersins, GRU. Hópurinn er ennfremur sagður hafa reynt að brjótast inn í tölvukerfi Demókrataflokksins.
Andstæðingur Macron fundaði með Putin
Talsmaður Vladimir Putin gaf lítið fyrir þessar ásakanir í vikunni og sagði að Rússland hefði aldrei komið að kosningum í erlendu ríki.
Marine Le Pen, andstæðingur Macron, fór til Moskvu í síðasta mánuði og fundaði með Vladimir Putin, forseta Rússlands. Hún er andvíg Evrópusambandinu, hefur opinberlega lýst yfir stuðningi við innlimun Rússlands á Krímskaga og lýst yfir aðdáun sinni á Putin. Þá hefur stjórnmálaflokkur hennar, Front National, tekið lán hjá bönkum í eigu rússneska ríkisins.
Macron hefur hins vegar lýst yfir stuðningi sínum við viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi vegna aðgerða þeirra í Úkraínu og er stuðningsmaður ESB.
Tengdar fréttir

Macron staðfestir að tölvuþrjótar hafi ráðist á skrifstofur hans
Kosningateymi Emmanuel Macron hefur staðfest að fimm tölvuárásir hafi verið gerðar á skrifstofur framboðsins síðan í janúar.

Le Pen og félagar stilla miðið á Macron
Miðjumaðurinn Emmanuel Macron er hrokafullur og enginn föðurlandssvinur ef marka má orð eins helsta ráðgjafa Marine Le Pen. Kosningabaráttan fyrir seinni umferð frönsku forsetakosninganna er strax hafinn og verður hún hörð af ummælum ráðgjafa Le Pen að dæma.

Sarkozy hyggst kjósa Macron
Franskir Repúblikanar hafa verið að opna á þann möguleika að starfa með Emmanuel Macron á næstu árum.

Hollande segir frönsku þjóðinni stafa hætta af Le Pen: Stuðningsmenn Macron sigurvissir
Francois Hollande, Frakklandsforseti, hefur lýst yfir stuðningi við miðjumanninn Emmanuel Macron, sem mun keppa við Marine Le Pen frambjóðanda frönsku Þjóðfylkingarinnar um forsetaembættið í síðari hluta frönsku forsetakosninganna í næsta mánuði.

Macron efstur í fyrri umferð forsetakosninganna
Miðjumaðurinn Emmanuel Macron bar sigur úr býtum í fyrri umferð forsetakosninganna í nót

Macron gjörsigrar Le Pen gangi spár eftir
Miðjumaðurinn Emmanuel Macron mun sigra Marine Le Pen, frambjóðanda Þjóðfylkingarinnar, með yfirburðum í næstu umferð frönsku forsetakosninganna ef fyrstu spár ganga eftir.

Le Pen segist vilja vísa öllum útlendingum undir eftirliti úr landi
Árásin í París í gærkvöldi hefur haft áhrif á frönsku forsetaframbjóðendurna og hafa sumir þeirra aflýst boðuðum kosningafundum.

Le Pen heitir því að halda hlífðarskildi yfir Frökkum verði hún kjörin
Marine Le Pen, forsetaframbjóðandi frönsku Þjóðfylkingarinnar, segir að hún muni loka landamærum Frakklands og þannig verja Frakka, verði hún kjörin forseti landsins.