Súkkulaði gegn brjóstakrabbameini Stefán Árni Pálsson skrifar 4. apríl 2017 16:30 Súkkulaði til styrktar góðu málefni.
Í gær hófst sala á sérhönnuðu og sérframleiddu Omnom súkkulaði fyrir styrktarfélagið Göngum saman, en 100% af söluandvirði þess fer í rannsóknir á brjóstakrabbameini. Omnom gaf alla sína vinnu; bæði hönnunina og súkkulaðið og þar sem kostnaður hjá Göngum saman er enginn, rennur allt söluandvirði beint til þessa nauðsynlega verkefnis. Göngum saman fagnar 10 ára afmæli í ár og nálguðust forsvarsmenn samtakanna Omnom um einhvers konar samstarf af því tilefni sem leiddi til þessa rausnarlega framlags fyrirtækisins. Göngum saman Omnom súkkulaðið inniheldur þrjár mismunandi tegundir súkkulaðis og fara 400 pakkningar í sölu í dag. Hver pakkning kostar 3.500 krónur og eins og áður sagði fara 3.500 krónur af því til rannsókna á brjóstakrabbameini. „Þegar kjarnakonurnar hjá Göngum saman leituðu eftir samstarfi var auðvelt að segja já. Við vildum leggja okkar af mörkum til að styðja þetta mikilvæga verkefni og gefum því okkar framlag með stolti og ánægju svo fólk geti styrkt Göngum saman,“ segir Hildur Halldórsdóttir, verkefnastjóri hjá Omnom, í tilkynningu frá Omnom. Göngum saman og Omnom efna til smakk- og söluveislu í húsnæði Omnom að Hólmaslóð 4 en auk þess er hægt að kaupa Göngum saman Omnom súkkulaðið í verslun Hlínar Reykdal að Fiskislóð 75, í verslun Aurum og Epal. Styrktarfélagið Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og hefur veitt íslenskum vísindamönnum 70 milljónir í styrki frá upphafi. Göngum saman leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar til heilsueflingar og vikulegar göngur félagsins eru opnar öllum áhugasömum. Upplýsingar um stað og stund er að finna á heimasíðu samtakanna gongumsaman.is og á facebook síðu félagsins.
Mest lesið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira