Bein útsending: Roller Derby veisla Stefán Árni Pálsson skrifar 8. apríl 2017 13:40 Svakaleg stemning.
Roller Derby mót fer fram í Hertz Höllinni dag en um er að ræða þriggja liða mót þar sem bresku liðin Suffolk Roller Derby frá Suffolk og Team Unicorn frá London keppa á móti Íslenska liðinu Ragnarökum og hvoru öðru. Þetta er fyrsta Roller Derby mótið sem haldið er á Íslandi og er Ragnarök eina íslenska liðið sem spilar íþróttina.Tímaplanið er svona: 13:30 - Ragnarök vs. Team Unicorn 15:45 - Ragnarök vs. Suffolk Roller Derby 18:00 - Team Unicorn vs. Suffolk Roller Derby En allir leikirnir eru í beinni útsendingu á Sport TV og má horfa á þá hér. Spilað er eftir reglum WFTDA (Women's Flat Track Derby Association) og má þær finna hér.Í stuttu máli virkar leikurinn þannig að 5 eru inn á brautinni í einu úr hvoru liði, 1 hlaupari (jammer) og 4 varnarmenn (blokkerar). Hlauparinn skorar stig með því að hringa andstæðingana og fær hann 1 stig fyrir hvern sem hann kemst framhjá. Hlutverk varnarmannanna er að koma í veg fyrir að hlaupari andstæðinganna komist fram hjá þeim en einnig að hjálpa sínum hlaupara í gegn um 'vegg' andstæðinganna. Þannig er vörn og sókn spiluð á sama tíma. Hver leikur er klukkutíma langur og skiptist í tvo þrjátíu mínútna leikhluta sem skiptast upp í mörg 2 mínútna jams. Fyrir hvert jam stilla varnarmennirnir sér upp fyrir framan hlauparalínuna og hlaupararnir fyrir aftan hana. Jammið hefst á einu stuttu flauti og fara þá hlaupararnir af stað og reyna að komast í gegn um veggina. Sá hlaupari sem er fyrstur að komast í gegn fær stöðuna lead jammer. Með því fær hann réttinn til að kalla jammið af og gefur hann það til kynna með því að setja hendurnar á mjaðmirnar nokkrum sinnum og er jammið þá flautað af með þremur flautum. Með þessu getur hann ráðið því hvort hann vilji halda áfram að skora stig og taka þá sénsinn á því að hinn hlauparinn geri það líka eða kallað jammið af til þess að koma í veg fyrir að hinn hlauparinn skori fleiri (ef einhver) stig. Hvert jam er að hámarki 2 mínútur og ef lead jammerinn hefur ekki kallað það af fyrir þann tíma er það flautað af af dómurunum. Stigunum er varpað upp á stigatöflu þar sem tíminn sést á leiknum og hverju jammi. Þar sést einnig hverjir eru hlauparar og hver hefur stöðu lead jammer hverju sinni.
Mest lesið Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Sport Markvörður Eista meiddur Fótbolti Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Mun Conte taka við Manchester United? Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Þrír framherjar sem Manchester United gæti sótt í janúar Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Gylfi búinn að vera rifbeinsbrotinn í þrjár vikur Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ Höfðingjarnir á mikilli siglingu Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Gylfi með til Eistlands Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Dagskráin í dag: Allt sem þú þarft að vita fyrir ballið í Bónus-deildinni Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Sjá meira