„Skilgreinandi augnablik“ Valur Páll Eiríksson skrifar 5. október 2026 07:47 Heimir Hallgrímsson á TSC Arena í Baka Topola í Serbíu, þar sem leikur Írlands við Ísrael fór fram í gær. Getty/Stephen McCarthy Heimir Hallgrímsson sagði að írska landsliðið myndi líta til baka á þetta landsleikjahlé sem „skilgreinandi augnablik“ í sögu sinni, eftir gærkvöldið þar sem deilur komu upp í 1-1 jafntefli Íra gegn Ísrael.
Það sauð upp úr í „heimaleik“ Íra gegn Ísrael í Þjóðadeildinni í gær, sem leikinn var fyrir luktum dyrum í Backa Topola í Serbíu. Árekstur varð milli leikmanna og starfsliðs beggja liða í hálfleik. Greint frá því að meðlimur í starfsliði Írlands hafi haldið því fram að ísraelskur leikmaður hafi hrækt á hann. Lætin urðu í kjölfar þess að írskir leikmenn báru aftur svört armbönd og lutu höfði á meðan ísraelski þjóðsöngurinn var spilaður til að mótmæla aðgerðum Ísraels á Gaza, en þeir höfðu gert slíkt hið sama þegar liðin mættust síðastliðinn sunnudag. Ísraelsku leikmennirnir báru einnig svört armbönd til minningar um fólkið sem lést í árásum Hamas á Ísrael 7. október 2023. Heimir sagðist ekki vilja tjá sig um meintan hráka og sagði að betra væri að láta aganefnd um það mál. „Ég get sagt það 100 prósent að þetta lið er sterkara,“ sagði Heimir. „Tengslin milli leikmanna hafa styrkst svo mikið. Það er á svona tímum sem leiðtogar verða til,“ „Á svona tímum kemstu að því hverjir eru þínir sönnu vinir, hverjum þú treystir. Jafnvel þótt þetta hafi verið erfitt fyrir okkur öll, þá held ég að við munum líta til baka á þessar tvær vikur og segja að þetta hafi verið skilgreinandi augnablik fyrir okkur, og öll vandamál héðan í frá munu virðast minni en það sem við hefðum séð fyrir tveimur vikum,“ segir Heimir og bætir við: „Ég held að það sé ávinningurinn af þessu öllu, og ég held að við þurfum að horfa jákvætt á neikvæðar tvær vikur,“ „Við þurfum núna smá tíma til að melta þetta og halda svo áfram. Það er líka besti tíminn til að finna óvini sína þegar maður liggur á jörðinni og fólk er að sparka í mann. Það er auðvelt að sjá hverjir voru að reyna að sparka í þig.“ Heimir sagði þá við írska ríkissjónvarpið RTE að hann teldi að „ásetningur“ Ísraelsmanna hefði verið að „hræða okkur og fá okkur til að gera eitthvað heimskulegt.“ Írland er eftir gluggann með fimm stig eftir fjóra leiki í riðli 3 í B-deild Þjóðadeildarinnar og situr í þriðja sæti, fyrir neðan Kósóvó vegna markatölu. Austurríki er efst í riðlinum með átta stig en Ísrael á botninum með tvö stig.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Þjóðadeild karla í fótbolta Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Írland Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira