Tryggja sér réttinn á sex bókum Stefáns Mána og ráðist í gerð sjónvarpsþátta Stefán Árni Pálsson skrifar 10. mars 2017 12:30 Stefán Máni Sigþórsson rithöfundur.
Mystery og Truenorth hafa tryggt sér réttinn á sex bókum eftir rithöfundinn Stefán Mána. Bækurnar eru Húsið, Svarti Galdur, Feigð og Grimmd ásamt tveimur óútgefnum bókum og er hugmyndin að útfæra þær allar í sjónvarpsseríu sem færi í framleiðslu árið 2019. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Truenorth. „Við byrjum á því að framleiða eina þáttaröð, en planið er að gera fleiri en eina,“ segir Kristinn Þórðarson, hjá Truenorth, um samstarfið við Stefán Mána. Framleiðendur þáttanna segjast vera himinlifandi yfir þessu umfangsmikla og spennandi verkefni en það eru þeir Davíð Óskar Ólafsson hjá Mystery Productions, Kristinn Þórðarson og Leifur B. Dagfinnsson hjá Truenorth. Aðalpersóna bókanna er lögreglumaðurinn Hörður og leikaraval fyrir það hlutverk fer af stað í vor. Þó ætla framleiðendur þáttanna ekki að fylgja útlitslýsingum Stefáns Mána á Herði og þar af leiðandi koma mun fleiri leikarar til greina í hlutverk hans. „Við munum semsagt alltaf taka fyrir eina bók og gera eina seríu úr henni. Það þarf vissulega að skálda aðeins inn í bækurnar til að fita þáttaröðina.“ Kristinn segir að það sé möguleiki á því að gera sex þáttaraðir og jafnvel enn fleiri. „Við höfum í raun leyfi til að gera enn fleiri þáttaraðir og nota þá karakterinn Hörð. Þá þyrftum við að fá inn handritshöfunda og annað slíkt. Okkur finnst persónan á bakvið Hörð mjög heillandi og þetta eru frábærar bækur frá Stefáni Mána.“ Kristinn segir að Truenorth sé nú þegar búið að ræða við erlend framleiðslufyrirtæki um að gerast meðframleiðendur.
Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Kanónur komu saman í Hveragerði Menning Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira