Mest stressaður þegar Gunni berst

Bardaginn markar endurkomu Gunnars Nelson í búrið eftir tíu mánaða fjarveru en hann barðist síðast – og vann – í Rotterdam í maí í fyrra þegar hann valtaði yfir Rússann Albert Tumenov.
Þarf sannfærandi sigur
Jouban er ekki á topplistanum eins og íslenski bardagakappinn en hann er búinn að vinna þrjá síðustu bardaga sína og getur með sigri komið sér inn á styrkleikalista veltivigtarinnar. Fyrir Jouban er allt í boði með sigri en Gunnar er aðallega að minna á sig og þarf helst sannfærandi sigur.
Sjá einnig:„Mikil gredda í Gunnari að fara alla leið“
„Það væri miklu sterkara fyrir Gunna að klára Jouban sannfærandi. Þá eru meiri líkur á því að hann fái annan bardaga sem fyrst,“ segir Jón Viðar en þetta er skoðun flestra sem Fréttablaðið hefur rætt við. Sannfærandi sigur ætti að tryggja Gunnari stærri bardaga, kannski strax í sumar.
„Ef Gunni klárar Jouban til dæmis með dómaraúrskurði verður UFC kannski ekkert alltof spennt fyrir því að láta hann fá annan bardaga alveg strax. Ef hann aftur á móti klárar þetta fljótt fær hann annan bardaga innan skamms tíma,“ segir Jón Viðar.
Besta auglýsingin
Jón Viðar hefur staðið vaktina hjá bardagaíþróttafélaginu Mjölni sem þjálfari, framkvæmdastjóri og nú formaður síðan það var stofnað. Ástríða hans fyrir sportinu og félaginu sínu leynir sér ekki og hann á erfitt með að brosa ekki þegar blaðamaður spyr hvort hann hugsi stundum hvert Mjölnir er kominn á innan við áratug; úr holu við slippinn í höll í Öskjuhlíðinni.
„Þetta er meira en draumur sem varð að veruleika. Maður bjóst aldrei við því að þetta yrði svona stórt,“ segir Jón Viðar, en hversu stóran þátt á velgengni Gunnars Nelson í þessu öllu saman?
Sjá einnig:Fengu símtal eftir að Gunnar lýsti því sjálfur yfir að hann vildi berjast
„Gunni er besta auglýsing sem við getum ímyndað okkur en fólkið er ekki að æfa þarna út af Gunna. Fólki líður vel að æfa þarna og það heldur því á staðnum. Gunni er frábær auglýsing og er andlitið okkar út á við en fólk æfir hjá Mjölni fyrir sig sjálft en ekki hann.“
Jón Viðar er í teymi Gunnars og er einfaldlega einn besti vinur hans. Jón gengur ávallt með Gunnari að búrinu og stendur þar og rekur upp hvatningaröskur fyrir sinn mann. Hann hjálpar líka öðrum bardagaköppum í Mjölni en samband hans og Gunnars er eðlilega sérstakt.
„Ég fer með öllu keppnisliðinu oft á ári til útlanda að berjast en maður er alltaf mest stressaður með Gunna. Þetta er allt aðeins stærra í kringum hann. Svo erum við líka svo góðir vinir að maður er mest stressaður þegar hann berst. Maður sýnir það samt aldrei,“ segir Jón Viðar Arnþórsson.
Ekki missa af neinu tengdu bardaga Gunnars Nelson og Alan Jouban. Vísir er í London og færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af Gunnari og bardagakvöldinu í O2-höllinni á laugardaginn. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).
Tengdar fréttir

Gunnar í upptökum fyrir UFC | Myndir
Gunnar Nelson eyddi deginum í að taka upp kynningarefni fyrir UFC fyrir bardagann á laugardaginn.

Gunni vill ananas á pítsuna sína
Gunnar Nelson sat fyrir svörum hjá UFC á Twitter í dag þar sem aðdáendur gátu spurt hann spjörunum úr.

Haraldur Nelson: Þjálfarar þurfa að vera meðvitaðir um hvað þetta er hættulegt
Faðir Gunnars Nelson er einn helsti baráttumaður gegn óhóflegum niðurskurði innan UFC.

Jouban skellti sér í ísbað í ruslatunnu | Myndband
Alan Jouban, andstæðingur Gunnars Nelson um helgina, kom til London í gær en hann hélt dagbók fyrir UFC áður en hann kom til Evrópu frá Bandaríkjunum.

Gunnar Nelson og Jón Viðar tókust á í gærkvöldi | Myndir
Gunnar Nelson fékk vin sinn og æfingafélaga Jón Viðar Arnþórsson til London í gær en þeir æfðu seint í gærkvöldi.

„Jouban getur gert margt til að ógna Gunnari“
Næsti mótherji Gunnars Nelson þykir ekki jafngóður glímumaður og íslenska undrið en hann lumar á ýmsum vopnum eins og góðum spörkum.

Áhugaverð greining á bardaga Gunnars og Jouban
Í þættinum UFC Breakdown með John Gooden, Dan Hardy og John Peet er skemmtileg úttekt á bardaga Gunnars Nelson og Alan Jouban sem mætast um næstu helgi.

Jón Viðar: Tilfinningin er eins og að þú sért fótbrotinn
Gunnar Nelson hugsar oftast lítið um andstæðinginn þegar hann berst en hann er að undirbúa sig fyrir helsta vopn Alans Joubans.

Gunnar segir mál Khabib algjörlega fáránlegt
Segir það furðulegt að Khabib Nurmagomedov hafi ekki náð þyngd fyrir bardaga sinn gegn Tony Ferguson á UFC 209.