Hans mál hvað hann gerir áður en kemur í landsliðsverkefni

Þjálfarinn var augljóslega ekki mjög kátur með það en refsaði þó leikmanninum ekki þar sem undirbúningurinn var ekki formlega hafinn. Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari ræddi þó málið við Viðar Örn sem baðst afsökunar á hegðun sinni.
„Við hreinsuðum þetta mál á fyrsta degi og héldum svo áfram. Hvað hann gerir áður en hann kemur í landsliðsverkefni er hans mál. Við ræddum málið og hann er ekki í skammarkróknum,“ segir Heimir sem sagði málið vera á gráu svæði því spurning væri hvenær menn séu komnir í landsliðsverkefni.
„Það gera allir mistök í lífinu og svo þurfa menn að sýna að þeir vilji bæta fyrir sín mistök og ég hef enga trú á öðru en að Viðar vilji gera það.“
Heimir segir að reglurnar séu alveg skýrar hjá landsliðinu, að ekkert áfengi sé leyft með liðinu. Hann vísaði á bug sögusögnum um að tveir leikmenn landsliðsins hefðu setið að sumbli eftir áðurnefndan leik gegn Króatíu. Hann sagði að það hefði komið beiðni um að menn fengju leyfi til þess að fá sér bjór sem hann hefði hafnað.
„Það var ekki agabrot að neinu leyti. Menn voru að horfa á UFC og voru nánast allir í orkudrykkjum. Sumir voru í vatni,“ sagði Heimir.
Tengdar fréttir

Mætti ölvaður til móts við íslenska landsliðið á Ítalíu
Viðar Örn Kjartansson er í landsliðshópi Íslands fyrir leikinn gegn Kósóvó.

Viðar með þrennu í sigri Maccabi
Viðar Örn Kjartansson skoraði öll þrjú mörk Maccabi Tel Aviv þegar liðið vann 3-0 sigur á Shmona í ísraelsku úrvalsdeildinni í dag.

Zenit tilbúið að borga einn milljarð fyrir Viðar Örn
Landsliðsmaðurinn Viðar Örn Kjartansson gæti verið á leiðinni til rússneska stórliðsins Zenit frá Pétursborg.

Heiðrar tyrkneskan kokk þegar hann fagnar
Viðar Örn Kjartansson hefur slegið í gegn í ísraelsku úrvalsdeildinni.

Viðar Örn enn á skotskónum
Viðar Örn Kjartansson skoraði fyrra mark Maccabi Tel Aviv í 2-1 sigri gegn Maccabi Petah Tikva í ísraelsku bikarkeppninni í knattspyrnu í kvöld.

Viðar Örn tjáir sig: Löngu hættur að drekka áður en ég mætti til móts við landsliðið
Viðar Örn Kjartansson, framherji íslenska landsliðsins og Maccabi Tel Aviv, hefur tjáð sig um mál málanna um að hann hafi mætt ölvaður til móts við landsliðið í nóvember síðastliðnum.

Ótrúlegur dagur fyrir Viðar sem var líka kosinn sá besti í Ísrael
Föstudagurinn 17. mars er ótrúlegur dagur fyrir íslenska landsliðsmanninn Viðar Örn Kjartansson en það hefur verið mikið fjaðrafok í kringum Selfyssinginn í dag eftir að fréttist af því að hann hafi komið til móts við landsliðið í nóvember síðastliðinn undir áhrifum áfengis.