NeoStrata Skin Active-línan vinnur gegn sýnilegum áhrifum öldrunar með einstökum og háþróuðum aðferðum.Vörurnar innihalda efni sem kallast ávaxtasýrur, en rannsóknir sýna að þær hafi verulega bætandi áhrif á húðina.
Hvað eru ávaxtasýrur? AHA- og PHA-sýrur eru einstakir rakagjafar og flýta fyrir endurnýjun húðfrumanna og vinna því gegn ótímabærri öldrun húðarinnar, þurrki og skemmdum í húð af völdum sólarljóss.
„Rannsóknir sýna að Neostrata-húðvörur sem innihalda glycolic-sýru (AHA) og eru notaðar í daglegri húðumhirðu draga úr fínum línum, hrukkum og gefa húðinni heilbrigt útlit.“ Glycolic-sýrur auka framleiðslu kollagens og gera húðina fyllri og stinnari.
Gluconolactone er önnur kynslóð af ávaxtasýrum. Gluconolactone er PHA-sýra sem er náttúrulegt andoxunarefni og er einstakur rakagjafi.
„Gluconolactone ertir ekki húðina og hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmri húð. Neostrata-húðvörur sem innihalda gluconolactone gefa húðinni jafnara og frísklegra yfirbragð.“
Sítrónusýra eða citric acid er sýra sem notuð er bæði í mat og snyrtivörur. Andoxunareiginleiki hennar hjálpar til við að minnka eyðileggjandi áhrif sólar og mengunar. Rannsóknir sýna að sítrónusýra dregur úr öldrun húðarinnar og minnkar fínar línur og hrukkur.

Andlitshreinsir: Skin Active Exfoliating Wash
Þessi sápulausi, freyðandi hreinsir fjarlægir á árangursríkan hátt olíu og fitu á húðinni ásamt öllum farða án þess að valda óþægindum og ertingu í húðinni. Blanda af aloe-, kamillu-, gúrku- og rósmarínseyðum sefa og róa húðina. Hentar öllum húðgerðum.

Augnkrem: Intensive Eye Therapy
Augnkrem sem gerir viðkvæma húðina í kringum augnsvæðið fyllri og þéttari. Augnsvæðið virðist sléttara og hláturhrukkurnar í kringum utanvert augnsvæðið sléttast. Inniheldur koffín sem dregur úr þrota.

Næturkrem: Cellular Restoration
Einstakt næturkrem, þróað til að veita raka og vinna gegn öldrun húðarinnar. Inniheldur stofnfrumuseyði úr eplum sem verndar og lengir líftíma stofnfruma húðarinnar.

Dagkrem: Matrix Support SPF 30
Einstakt dagkrem sem inniheldur góða efnasamsetningu sem veitir húðinni góðan raka, örvar kollagenframleiðslu og endurbyggir stoðir húðarinnar. Vinnur einnig gegn litabreytingum í húð.

Serum: Antioxidant Defense Serum
Dregur úr ójöfnum húðlit og gefur húðinni jafnara yfirbragð, góðan raka,næringu og dregur úr línum. Styrkir og stinnir húðina. Hentar öllum húðgerðum.
„Í klínískri rannsókn sögðust 93% kvenna myndu velja Skin Active-vörurnar sem hluta af daglegri umhirðu húðarinnar.“
„93% þátttakenda fannst yfirborð húðarinnar verða mýkra, húðliturinn jafnari og fínar línur og hrukkur minna sjáanlegar.“
Hægt er fræðast meira um Neostratavörurnar á heimasíðu merksins, Neostrata.is.
