Vinnumálaráðherraefni Trump dregur sig í hlé Samúel Karl Ólason skrifar 15. febrúar 2017 21:12 Andrew Puzder. Vísir/AFP
Andrew Puzder, maðurinn sem Donald Trump hafði tilnefnt í embætti vinnumálaráðherra Bandaríkjanna, hefur dregið sig í hlé og ætlar ekki að sækjast eftir embættinu. Yfirheyrslur yfir honum áttu að fara fram á morgun, en hann hafði misst stuðningi öldungaþingmanna Repúblikana og hefði líklega ekki verið staðfestur í embættið.Puzder viðurkenndi að hafa ráðið húsfreyju sem var ólöglegur innflytjandi og hefur einnig verið gagnrýndur fyrir fyrri ummæli sín um konur og vinnandi fólk. Hann er framkvæmdastjóri fyrirtækis sem á veitingastaðina Hardee‘s og Carl‘s Jr. Ummæli hans um yfirvinnu og lágmarkslaun hafa einnig verið umdeild. Þar að auki kom þáverandi eiginkona hans fram í þætti Opruh Winfrey árið 1990 og sakaði hann um að hafa beitt sig ofbeldi. Hún dró þau ummæli þó til seinna til baka og sagði þeim hafa verið ætlað að hjálpa henni að öðlast forræði yfir börnum þeirra. Minnst 50 öldungaþingmenn hefðu þurft að greiða atkvæði honum í vil, en þingmenn Repúblikanaflokksins eru einungis 52. Samkvæmt heimildum CNN höfðu fjórir þeirra lýst því yfir við aðra þingmenn að þeir myndu ekki greiða honum atkvæði og allt að tólf höfðu dregið það í efa.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira