CDFA stendur með Planned Parenthood Ritstjórn skrifar 7. febrúar 2017 11:30 Glamour/AFP
Tískuheimurinn er sífellt að verða pólitískari og hefur það aukist til muna síðan í kosningum vestanhafs í fyrra, þar sem hönnuðir hafa meðal annars neitað að klæða fjölskyldumeðlimi forsetans nýkjörna. Nú hefur tískuráð Bandaríkjanna, the Council of Fashion Designers of America eða CDFA, hafa ákveðið að styðja við bakið á samtökunum Planned Parenthood á tískuvikunni í New York sem hefst á fimmtudaginn en samtökin hafa verið mikið í umræðunni síðan Donald Trump lét það vera eitt af sínum fyrstu verkum í embætti að skrifa undir tilskipun þess efnis að skrúfa fyrir ríkisstyrki í samtök á borð við Planned Parenthood. CDFA hefur látið útbúa bleik barmerki með áletruninni "Fashion stands with Planned Parenthood" sem verður dreift á hönnuði, fyrirsætur og aðra gesti tískuvikunnar í þeirri von um að sem flestir setji upp barmerkin og veki þannig athygli á mikilvægi starfssemi samtakanna. Þá verður einnig dreift út einblöðungum sem hvetja alla til að styrkja samtökin og kynna þeirra mikilvæga starf. Meðal þeirra hönnuða sem taka þátt í átakinu eru til dæmis Proenza Schouler, Diane von Furstenberg, Prabal Gurung, Tory Burch, Zac Posen, og Carolina Herrera. Hvað er Planned Parenthood? Samtökin einblína á heilsugæslu og kynfræðslu til kvenna og ungs fólk. Hægt er lesa nánar um samtökin hér.
Donald Trump Mest lesið Tími buxnadragtarinnar er kominn! Glamour "Hættulegt að hugsa of mikið um hamingjuna“ Glamour NYX Professional Makeup bauð í veislu í Kaupmannahöfn Glamour Haustlegt dress vikunnar hjá Glamour Glamour Gengi Gucci enn og aftur fram úr vonum Glamour Gekk tískupallinn með tveggja ára dóttur sinni Glamour 9 ráð til stækka lítil rými Glamour Kim og Kanye ástfangin á forsíðu Harper's Bazaar Glamour Ný auglýsingaherferð H&M vekur mikla athygli Glamour Taka þekktar baráttukonur með sér á rauða dregilinn Glamour