Á námskeiðunum er unnið að því að auka sjálfstraust þátttakenda og trú þeirra á eigin getu. Stefnt er að því að þeir verði meðvitaðri um eigin andlega og líkamlega heilsu og læri aðferðir til að halda jafnvægi í lífinu. Þannig láta þeir síður kvíða og streitu ná tökum á sér, kunna leiðir til að sjá lausnir en ekki vandamál og læra að setja mörk. Meginmarkmiðið er að verða besta útgáfan af sjálfum sér.
Námskeiðin eru fyrir 13-15 ára, 16-19 ára og 20-25 ára, en þau síðastnefndu eru sérstaklega hugsuð fyrir ungt fólk sem vill öðlast skýrari stefnu í lífinu og auka samkeppnisforskot sitt á vinnumarkaði.

Vanda starfar sem lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er einelti og tómstunda- og leiðtogafræði. Anna hefur sérhæft sig í að þjálfa ungt fólk og hefur mikla reynslu af því að halda námskeið og fyrirlestra. Saman eru þær öflugt teymi. Námskeiðin standa flest í átta vikur. „Við trúum á það að ástundun skili árangri eða „learning by doing“ og erum með allskyns skemmtilegar æfingar og hópefli.“ Aðspurð segir Anna námskeiðin vera fyrir allt ungt fólk, enda takast allir á við einhverjar áskoranir.
Þær Vanda og Anna bjóða þó líka upp á sértækt námskeið sem nefnist Vináttuþjálfun en Vanda hefur sérhæft sig í henni. „Námskeiðið gagnast öllum börnum og unglingum en er sérlega gagnlegt fyrir þá sem eiga eða hafa átt í félagslegum vanda eins og einangrun og vinaleysi eða hafa orðið fyrir einelti og höfnun,“ segir Anna.
Þá er boðið upp á námskeið fyrir fagfólk og kennara sem vinnur með börnum og ungmennum. „Þessu fólki vantar oft verkfæri til að takast á við hluti sem koma upp í starfi. Stærðfræðikennari er til dæmis ekki endilega sérfræðingur í hópefli eða samskiptum en það erum við,“ segir Anna en auk námskeiða býður KVAN upp á styttri fyrirlestra fyrir jafnt ungmenni sem fullorðna og fagfólk.
Á morgun, miðvikudag, verður haldin kynning á námskeiðunum að Hábraut 1a í Kópavogi (gengið inn að neðanverðu). Kynningin hefst klukkan 20 og er opin öllum. Anna hvetur alla, sem telja sig geta haft gagn af, að líta við.
